Vá, krafturinn! En hvað svo? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar 18. janúar 2018 07:00 Krafturinn í íslenskum konum er ótrúlegur. Mikill fjöldi kvenna kemur fram með nýjar viðskiptahugmyndir, verkefni og fyrirtæki sem í mörgum tilfellum uppfylla nýjar þarfir markaðarins á sviði fjölbreyttra atvinnugreina, svo sem ferðaþjónustu, heilsuvara, snyrtivara, veitingarekstrar, húsbúnaðar, kvikmyndagerðar, barnavara o.s.frv. Ef rýnt er í stöðuna sýna rannsóknir þó að konur eru síður en karlar tilbúnar að veðsetja eignir sínar til að koma góðri hugmynd í framkvæmd. Markmið Svanna, lánatryggingasjóðs kvenna, er einmitt að opna fjármögnunarmöguleika til kvenna með veitingu ábyrgða á lánum fyrir markaðskostnaði, vöruþróun og nýjum leiðum í framleiðslu eða framsetningu vara og þjónustu. Sjóðurinn er í eigu velferðarráðuneytis, atvinnu- og nýsköpunarráðuneytis og Reykjavíkurborgar og er í samstarfi við Landsbanka Íslands. Í byrjun árs gerði sjóðurinn samninga við nokkur fyrirtæki í meirihlutaeigu og undir stjórn kvenna þar sem krafa er um nýsköpun/sérstöðu að einhverju marki og að verulegar líkur séu á að verkefnið leiði til aukinnar atvinnusköpunar kvenna. Sjóðurinn hefur samþykkt 17 verkefni síðan hann var settur á laggirnar árið 2011.Lítil þekking á verkfærakistunni Eingöngu lítill hluti fyrirtækja sem stofnað er til nær að fjármagna sig og komast á legg þrátt fyrir góða viðskiptahugmynd. Í grunninn eru áskoranirnar tvær. Í fyrsta lagi skortir konur í mörgum tilfellum þekkingu, reynslu og skilning á þeirri verkfærakistu sem þarf til að koma góðri hugmynd yfir í arðbæran rekstur. Þar má nefna gerð viðskipta-, markaðs- og söluáætlana, sjóðsstreymi, endurgreiðslutíma fjármagns, greiningu samkeppnisaðila, stefnumótun o.s.frv. Æskilegt væri að grunnkennsla í gerð viðskiptaáætlana væri kennd í efstu bekkjum grunnskóla eða í framhaldsskólum til að sem flestir öðlist grunnþekkingu á verkfærakistunni. Þannig að ef hugmynd fæðist muni sú þekking auðvelda fólki, í öllum atvinnugreinum, með kraftinn og viljann að vopni að koma hugmynd í framkvæmd. Ef þekking – og einkum skilningur – er til staðar á þeim fjölmörgu litlu skrefum sem þarf að taka margfaldast líkurnar á því að fyrirtæki komist á legg og skapi vöxt og störf fyrir samfélagið. Rannsóknir sýna að eftirfylgni og ráðgjöf skipta verulegu máli hvað varðar framgang og árangur verkefna. Sem betur fer er stækkandi hópur sem sinnir þessu starfi í dag; Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Icelandic Startups, atvinnuþróunarfélög, Vinnumálastofnun og fleiri aðilar.Lítið tengsla- og þekkingarnet Í öðru lagi liggur vandamálið í skorti á tengslum og aðgengi að rauntölum atvinnugreinar. Margar konur skortir tengsla- og þekkingarnet. Í mörgum tilvikum er ástæða þessa einangrun landsbyggðar ásamt því að þær eru að feta fyrstu sporin í atvinnugreininni. Hér þarf samstarf atvinnugreina og sveitarfélaga til að byggja upp aðgengileg net fyrir viðskiptahugmyndir og fyrirtæki. Bæði er mikilvægt að konur hafi aðgang að sérfræðingum sem veita þeim innsæi, endurgjöf og einkum verðmæt tengsl innan atvinnugreinar og markaðar. En ekki síður er mikilvægt að hafa aðgang að rauntölum. Góð viðskiptahugmynd með réttri notkun á verkfærakistu verður ekki að arðbærum rekstri ef t.d. rauntölur kostnaðar á einingu og væntrar sölu eru ekki til staðar. Hver er reynsla þessa markaðar og atvinnugreinar af kostnaði framleiddrar einingar? Hvaða mistök hafa verið gerð í þessari atvinnugrein við markaðssetningu inn á erlendan markað? Hvar liggja bestu viðskiptasamböndin? Hver er eðlileg framlegð og raunstærð markaðar? Ekki þarf að gera sömu mistökin við tvær góðar viðskiptahugmyndir. Það er óskandi að samstaða menntastofnana, atvinnulífs og sveitarfélaga gefi krafti íslensku þjóðarinnar enn frekari tækifæri til að skapa verðmæti úr þeim fjölda viðskiptahugmynda, innan ólíkra atvinnugreina, sem fæðast á hverjum degi úti um allt land. Höfundur er formaður stjórnar Svanna, lánatryggingasjóðs kvenna. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Er þetta í alvöru verðlaunaefni? Snorri Másson Skoðun Þurfum við að koma Íslandi aftur á rétta braut? Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Himinhátt innanlandsflug Ingibjörg Isaksen Skoðun Nýtt örorkukerfi – verra þeirra réttlæti Marinó G. Njálsson Skoðun Æpandi vanþekking Hjálmar Jónsson Skoðun Valdarán í Kirkju sjöunda dags aðventista og tengslin við fyrirhugaðar framkvæmdir í Ölfusi Jón Hjörleifur Stefánsson,Ómar Torfason Skoðun Norskur skammtímagróði Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Dánaraðstoð: Rangfærslur varðandi skrif Læknafélags Íslands Ingrid Kuhlman,Bjarni Jónsson,Sylviane Lecoulte,Steinar Harðarson,Veturliði Þór Stefánsson,Íris Davíðsdóttir Skoðun Helga Þórisdóttir og fjöregg íslenskrar þjóðar Páll Torfi Önundarson Skoðun Lykillinn að orkuskiptunum er úr áli Guðríður Eldey Arnardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Himinhátt innanlandsflug Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Hefur allt sem þarf Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju að gera rekstraráætlun? Karl Sólnes Jónsson skrifar Skoðun Norskur skammtímagróði Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Æpandi vanþekking Hjálmar Jónsson skrifar Skoðun Mannréttindi sama hvað Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Helga Þórisdóttir og fjöregg íslenskrar þjóðar Páll Torfi Önundarson skrifar Skoðun Er þetta í alvöru verðlaunaefni? Snorri Másson skrifar Skoðun Ótímabundin ráðgjöf til ríkisstjórnar Snæbjörn Brynjarsson skrifar Skoðun Lykillinn að orkuskiptunum er úr áli Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar Skoðun Valdarán í Kirkju sjöunda dags aðventista og tengslin við fyrirhugaðar framkvæmdir í Ölfusi Jón Hjörleifur Stefánsson,Ómar Torfason skrifar Skoðun „Vitum ekkert hvað við erum að gera“ Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Nýtt örorkukerfi – verra þeirra réttlæti Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: Rangfærslur varðandi skrif Læknafélags Íslands Ingrid Kuhlman,Bjarni Jónsson,Sylviane Lecoulte,Steinar Harðarson,Veturliði Þór Stefánsson,Íris Davíðsdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að koma Íslandi aftur á rétta braut? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Þurfum við koma Íslandi aftur á rétta braut? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Bergmál frá geymslustað líkamans Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Gummi Kalli Kristinn Sigurðsson skrifar Skoðun Það verður ekki bæði sleppt og haldið Melkorka Mjöll Kristinsdóttir skrifar Skoðun Katrín og Gunnar Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Andleg heilsa unga fólksins og áhrif samfélagsmiðla Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Börnin okkar Sigurbjörg Jónsdóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónusta til framtíðar Freyja Rut Emilsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn heldur utan um þig Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Öryggi – Forvitni – Gleði Sigríður Hrund Pétursdóttir skrifar Skoðun Öryrkjar auglýsi eftir harðorðum mótmælum! Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Farsælar forvarnir í þágu barna í Reykjavík Guðrún Halla Jónsdóttir,Óskar Dýrmundur Ólafsson skrifar Skoðun Baldur í lit Anna Lára Pálsdóttir skrifar Skoðun Lega lýðveldisins Íslands Eiríkur Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Afhverju ætlar Carbfix að flytja CO2 inn til landsins? Bergur Sigfússon skrifar Sjá meira
Krafturinn í íslenskum konum er ótrúlegur. Mikill fjöldi kvenna kemur fram með nýjar viðskiptahugmyndir, verkefni og fyrirtæki sem í mörgum tilfellum uppfylla nýjar þarfir markaðarins á sviði fjölbreyttra atvinnugreina, svo sem ferðaþjónustu, heilsuvara, snyrtivara, veitingarekstrar, húsbúnaðar, kvikmyndagerðar, barnavara o.s.frv. Ef rýnt er í stöðuna sýna rannsóknir þó að konur eru síður en karlar tilbúnar að veðsetja eignir sínar til að koma góðri hugmynd í framkvæmd. Markmið Svanna, lánatryggingasjóðs kvenna, er einmitt að opna fjármögnunarmöguleika til kvenna með veitingu ábyrgða á lánum fyrir markaðskostnaði, vöruþróun og nýjum leiðum í framleiðslu eða framsetningu vara og þjónustu. Sjóðurinn er í eigu velferðarráðuneytis, atvinnu- og nýsköpunarráðuneytis og Reykjavíkurborgar og er í samstarfi við Landsbanka Íslands. Í byrjun árs gerði sjóðurinn samninga við nokkur fyrirtæki í meirihlutaeigu og undir stjórn kvenna þar sem krafa er um nýsköpun/sérstöðu að einhverju marki og að verulegar líkur séu á að verkefnið leiði til aukinnar atvinnusköpunar kvenna. Sjóðurinn hefur samþykkt 17 verkefni síðan hann var settur á laggirnar árið 2011.Lítil þekking á verkfærakistunni Eingöngu lítill hluti fyrirtækja sem stofnað er til nær að fjármagna sig og komast á legg þrátt fyrir góða viðskiptahugmynd. Í grunninn eru áskoranirnar tvær. Í fyrsta lagi skortir konur í mörgum tilfellum þekkingu, reynslu og skilning á þeirri verkfærakistu sem þarf til að koma góðri hugmynd yfir í arðbæran rekstur. Þar má nefna gerð viðskipta-, markaðs- og söluáætlana, sjóðsstreymi, endurgreiðslutíma fjármagns, greiningu samkeppnisaðila, stefnumótun o.s.frv. Æskilegt væri að grunnkennsla í gerð viðskiptaáætlana væri kennd í efstu bekkjum grunnskóla eða í framhaldsskólum til að sem flestir öðlist grunnþekkingu á verkfærakistunni. Þannig að ef hugmynd fæðist muni sú þekking auðvelda fólki, í öllum atvinnugreinum, með kraftinn og viljann að vopni að koma hugmynd í framkvæmd. Ef þekking – og einkum skilningur – er til staðar á þeim fjölmörgu litlu skrefum sem þarf að taka margfaldast líkurnar á því að fyrirtæki komist á legg og skapi vöxt og störf fyrir samfélagið. Rannsóknir sýna að eftirfylgni og ráðgjöf skipta verulegu máli hvað varðar framgang og árangur verkefna. Sem betur fer er stækkandi hópur sem sinnir þessu starfi í dag; Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Icelandic Startups, atvinnuþróunarfélög, Vinnumálastofnun og fleiri aðilar.Lítið tengsla- og þekkingarnet Í öðru lagi liggur vandamálið í skorti á tengslum og aðgengi að rauntölum atvinnugreinar. Margar konur skortir tengsla- og þekkingarnet. Í mörgum tilvikum er ástæða þessa einangrun landsbyggðar ásamt því að þær eru að feta fyrstu sporin í atvinnugreininni. Hér þarf samstarf atvinnugreina og sveitarfélaga til að byggja upp aðgengileg net fyrir viðskiptahugmyndir og fyrirtæki. Bæði er mikilvægt að konur hafi aðgang að sérfræðingum sem veita þeim innsæi, endurgjöf og einkum verðmæt tengsl innan atvinnugreinar og markaðar. En ekki síður er mikilvægt að hafa aðgang að rauntölum. Góð viðskiptahugmynd með réttri notkun á verkfærakistu verður ekki að arðbærum rekstri ef t.d. rauntölur kostnaðar á einingu og væntrar sölu eru ekki til staðar. Hver er reynsla þessa markaðar og atvinnugreinar af kostnaði framleiddrar einingar? Hvaða mistök hafa verið gerð í þessari atvinnugrein við markaðssetningu inn á erlendan markað? Hvar liggja bestu viðskiptasamböndin? Hver er eðlileg framlegð og raunstærð markaðar? Ekki þarf að gera sömu mistökin við tvær góðar viðskiptahugmyndir. Það er óskandi að samstaða menntastofnana, atvinnulífs og sveitarfélaga gefi krafti íslensku þjóðarinnar enn frekari tækifæri til að skapa verðmæti úr þeim fjölda viðskiptahugmynda, innan ólíkra atvinnugreina, sem fæðast á hverjum degi úti um allt land. Höfundur er formaður stjórnar Svanna, lánatryggingasjóðs kvenna.
Valdarán í Kirkju sjöunda dags aðventista og tengslin við fyrirhugaðar framkvæmdir í Ölfusi Jón Hjörleifur Stefánsson,Ómar Torfason Skoðun
Dánaraðstoð: Rangfærslur varðandi skrif Læknafélags Íslands Ingrid Kuhlman,Bjarni Jónsson,Sylviane Lecoulte,Steinar Harðarson,Veturliði Þór Stefánsson,Íris Davíðsdóttir Skoðun
Skoðun Valdarán í Kirkju sjöunda dags aðventista og tengslin við fyrirhugaðar framkvæmdir í Ölfusi Jón Hjörleifur Stefánsson,Ómar Torfason skrifar
Skoðun Dánaraðstoð: Rangfærslur varðandi skrif Læknafélags Íslands Ingrid Kuhlman,Bjarni Jónsson,Sylviane Lecoulte,Steinar Harðarson,Veturliði Þór Stefánsson,Íris Davíðsdóttir skrifar
Skoðun Farsælar forvarnir í þágu barna í Reykjavík Guðrún Halla Jónsdóttir,Óskar Dýrmundur Ólafsson skrifar
Valdarán í Kirkju sjöunda dags aðventista og tengslin við fyrirhugaðar framkvæmdir í Ölfusi Jón Hjörleifur Stefánsson,Ómar Torfason Skoðun
Dánaraðstoð: Rangfærslur varðandi skrif Læknafélags Íslands Ingrid Kuhlman,Bjarni Jónsson,Sylviane Lecoulte,Steinar Harðarson,Veturliði Þór Stefánsson,Íris Davíðsdóttir Skoðun