Þetta eru hættulegustu gatnamót landsins Baldur Guðmundsson skrifar 18. janúar 2018 07:00 Umferðin á Miklubraut er þung á mestu annatímum. Vísir/Ernir „Þetta sýnir okkur að hættulegustu gatnamót landsins eru ljósastýrð,“ segir Ólafur Guðmundsson, tæknistjóri EuroRAP á Íslandi. Í skýrslum Samgöngustofu er að finna lista yfir hættulegustu gatnamót landsins í þéttbýli. Þegar tölurnar fyrir undanfarin tíu ár eru lagðar saman sést að þrenn hættulegustu gatnamótin eru við Miklubraut. Engin af þeim gatnamótum sem rata á topplista tímabilsins 2007 til 2016 eru með hringtorgum eða eru mislæg. Þó má nefna að gatnamótin við Höfðabakka komast á listann en á þeim eru umferðarljós.Ólafur bendir á að fjölförnustu gatnamót landsins, gatnamót Reykjanesbrautar og Miklubrautar, komist ekki á lista yfir 20 hættulegustu gatnamót höfuðborgarsvæðisins. „Það segir mér að ljósastýrð gatnamót eru hættulegri en hringtorg eða mislæg gatnamót.“ Það sé því ekki lögmál að fjölförnustu gatnamót landsins séu þau hættulegustu. Ólafur, sem vinnur að því hjá EuroRAP að leggja mat á íslenska vegakerfið, segir að ljósastýrð gatnamót séu með „innbyggðum killer“. „Ef eitthvað klikkar á þeim þá verður það vont. Það eru allir á fullri ferð. Sá sem klikkar í hringtorgi er alltaf á minni ferð,“ útskýrir Ólafur og bætir við að á ljósastýrðum gatnamótum verði árekstrarnir yfirleitt beint framan/aftan á bíla eða inn í hlið þeirra. Í hringtorgum sé hornið um 30 gráður. Þrenn hættulegustu gatnamótin við Miklubraut eru við Háaleitisbraut, Grensásveg og Kringlumýrarbraut. Á hverjum gatnamótum hafa orðið á bilinu 34 til 40 slys undanfarin tíu ár þar sem meiðsli verða á fólki. Ólafur vill fá Miklubraut í stokk og frítt flæði um þessa fjölförnustu götu landsins. Þá muni rauðu punktarnir á kortinu einfaldlega hverfa. Hann bendir á að mislæg gatnamót Miklubrautar og Réttarholtsvegar komist hvergi á blað þegar slysatölur eru skoðaðar en segir þó að menn þurfi að vanda sig. Þannig verði oft slys á illa heppnuðum gatnamótum Vesturlandsvegar og Höfðabakka. Þar séu það ljósin uppi á brúnni sem valdi slysum. Mislæg gatnamót eru dýr í framkvæmd en Ólafur bendir á að sums staðar megi einfaldlega setja niður hringtorg. Sprungin hringtorg og ljósastýrð gatnamót anni álíka mikilli umferð. Slysin verði hins vegar ekki eins alvarleg í hringtorgunum, enda sé hraðinn miklu minni. „Þetta kostar peninga og þetta verður átak. En við komumst ekki hjá því,“ segir hann. Ólafur vill að hlutlausir sérfræðingar verði fengnir til að gera faglegt umferðarmódel af öllu höfuðborgarsvæðinu í heild, með það fyrir augum að auka flæði umferðarinnar og draga úr slysahættu. Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Svipar til gamalla óupplýstra rána Innlent Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Innlent Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert Innlent Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Innlent Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Innlent Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Innlent „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Innlent Fleiri fréttir Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Haraldur mátti ekki hækka launin en Sigríður ekki heldur lækka þau Læknafélagið mótfallið lögleiðingu dánaraðastoðar „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Ekki viss hvort nokkru þurfi að breyta eftir tug milljóna króna þjófnað 546 Grindvíkingar vilja selja Þórkötlu húsið sitt Steinunn Ólína hálfu skrefi frá því að bjóða sig fram Sjá meira
„Þetta sýnir okkur að hættulegustu gatnamót landsins eru ljósastýrð,“ segir Ólafur Guðmundsson, tæknistjóri EuroRAP á Íslandi. Í skýrslum Samgöngustofu er að finna lista yfir hættulegustu gatnamót landsins í þéttbýli. Þegar tölurnar fyrir undanfarin tíu ár eru lagðar saman sést að þrenn hættulegustu gatnamótin eru við Miklubraut. Engin af þeim gatnamótum sem rata á topplista tímabilsins 2007 til 2016 eru með hringtorgum eða eru mislæg. Þó má nefna að gatnamótin við Höfðabakka komast á listann en á þeim eru umferðarljós.Ólafur bendir á að fjölförnustu gatnamót landsins, gatnamót Reykjanesbrautar og Miklubrautar, komist ekki á lista yfir 20 hættulegustu gatnamót höfuðborgarsvæðisins. „Það segir mér að ljósastýrð gatnamót eru hættulegri en hringtorg eða mislæg gatnamót.“ Það sé því ekki lögmál að fjölförnustu gatnamót landsins séu þau hættulegustu. Ólafur, sem vinnur að því hjá EuroRAP að leggja mat á íslenska vegakerfið, segir að ljósastýrð gatnamót séu með „innbyggðum killer“. „Ef eitthvað klikkar á þeim þá verður það vont. Það eru allir á fullri ferð. Sá sem klikkar í hringtorgi er alltaf á minni ferð,“ útskýrir Ólafur og bætir við að á ljósastýrðum gatnamótum verði árekstrarnir yfirleitt beint framan/aftan á bíla eða inn í hlið þeirra. Í hringtorgum sé hornið um 30 gráður. Þrenn hættulegustu gatnamótin við Miklubraut eru við Háaleitisbraut, Grensásveg og Kringlumýrarbraut. Á hverjum gatnamótum hafa orðið á bilinu 34 til 40 slys undanfarin tíu ár þar sem meiðsli verða á fólki. Ólafur vill fá Miklubraut í stokk og frítt flæði um þessa fjölförnustu götu landsins. Þá muni rauðu punktarnir á kortinu einfaldlega hverfa. Hann bendir á að mislæg gatnamót Miklubrautar og Réttarholtsvegar komist hvergi á blað þegar slysatölur eru skoðaðar en segir þó að menn þurfi að vanda sig. Þannig verði oft slys á illa heppnuðum gatnamótum Vesturlandsvegar og Höfðabakka. Þar séu það ljósin uppi á brúnni sem valdi slysum. Mislæg gatnamót eru dýr í framkvæmd en Ólafur bendir á að sums staðar megi einfaldlega setja niður hringtorg. Sprungin hringtorg og ljósastýrð gatnamót anni álíka mikilli umferð. Slysin verði hins vegar ekki eins alvarleg í hringtorgunum, enda sé hraðinn miklu minni. „Þetta kostar peninga og þetta verður átak. En við komumst ekki hjá því,“ segir hann. Ólafur vill að hlutlausir sérfræðingar verði fengnir til að gera faglegt umferðarmódel af öllu höfuðborgarsvæðinu í heild, með það fyrir augum að auka flæði umferðarinnar og draga úr slysahættu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Svipar til gamalla óupplýstra rána Innlent Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Innlent Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert Innlent Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Innlent Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Innlent Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Innlent „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Innlent Fleiri fréttir Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Haraldur mátti ekki hækka launin en Sigríður ekki heldur lækka þau Læknafélagið mótfallið lögleiðingu dánaraðastoðar „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Ekki viss hvort nokkru þurfi að breyta eftir tug milljóna króna þjófnað 546 Grindvíkingar vilja selja Þórkötlu húsið sitt Steinunn Ólína hálfu skrefi frá því að bjóða sig fram Sjá meira