Telur sig þurfa að losna undan eignarhaldi í Morgunblaðinu Kristín Ólafsdóttir skrifar 21. janúar 2018 13:32 Eyþór er einn hluthafa í Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins. Vísir/Eyþór Kaupsýslumaðurinn Eyþór Arnalds, sem sækist eftir oddvitasæti í leiðtogakjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, er þeirrar skoðunar að hann eigi að stíga út úr öllum rekstri fjölmiðla nái hann kjöri í borginni. Þá bendir hann þeim sem eru áhugasamir um hagsmuni hans að lesa ítarlega umfjöllun Stundarinnar um málið. Eyþór var gestur þáttarins Sprengisands á Bylgjunni í dag, ásamt Helgu Völu Helgadóttur alþingismanni og Guðlaugu Kristjánsdóttur forseta bæjarstjórnar í Hafnarfirði og ræddu þau meðal annars borgarlínuna umdeildu og #MeToo-átakið.Íhugar að kaupa þúsund eintök af StundinniÞá var Eyþór, sem er umsvifamikill kaupsýslumaður og stærsti einstaki hluthafi í Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins, spurður út í mögulega hagsmunaárekstra verði hann kjörinn oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík. Eyþór sagði ljóst að hann þyrfti að hverfa frá ákveðnum verkefnum. „Ég þarf að stíga úr verkefnum og þess vegna var svolítið stór ákvörðun fyrir mig að fara í þetta. Ef ég tapa á laugardaginn þá er ég frjáls en ef ég vinn þá þarf ég að gera greinarmun á þessu tvennu.“Sjá einnig: Góðan daginn, Viðar Guðjohnsen hérna meginGuðlaugu lá þá forvitni á að vita hvar hægt væri að finna yfirlit yfir hagsmunaskráningu Eyþórs. „Í Stundinni,“ svaraði Eyþór um hæl. „Stundin hringdi í mig og ég veit að margir Sjálfstæðismenn svara ekki Stundinni en ég ákvað að svara þeim og þetta er tveggja blaðsíðna viðtal sem er tekið og prentað nákvæmlega allt sem ég sagði. Svo fóru þeir yfir þessi 26 fyrirtæki og þetta er allt prentað í Stundinni. Ég var að spá í að kaupa þúsund eintök og hafa á kosningaskrifstofunni.“ Þá kvaðst Eyþór ánægður með að fá símtal frá Stundinni um þessi mál og að hann hefði sjálfur ekkert að fela.Áslaug Friðriksdóttir, Eyþór Arnalds, Kjartan Magnússon, Viðar Guðjohnsen og Vilhjálmur Bjarnason sækjast eftir oddvitasæti Sjálfstæðismanna í Reykjavík.Vísir/Anton BrinkEngar beinagrindur í skápnumEyþór var auk þess inntur eftir því hvort það væri ekki ljóst að hann þyrfti að selja hlut sinn í Morgunblaðinu en eins og áður sagði er Eyþór stærsti einstaki hluthafi í Árvakri. „Nú eru einhverjir á þingi sem eiga í fjölmiðlum, ég bendi á það,“ sagði Eyþór . „Ég ætla að fara úr öllu sem er „konflikt“, það er það sem ég segi. Nú er ég ekki orðinn frambjóðandi, hvað þá kjörinn fulltrúi. En ég er búinn að svara öllum, það eru engar beinagrindur í skápnum, þær eru bara á borðinu.“ Þá var Eyþór krafinn um afdráttarlaust svar við spurningunni, þ.e. hvort hann þyrfti ekki að losna undan eignarhaldi í fjölmiðli yrði hann borgarfulltrúi. Eyþór sagði svo vera. „Ég er þeirrar skoðunar að ég eigi að fara úr því. En eitt skref í einu, það er prófkjör fyrst. En ég er prinsippmaður.“ Leiðtogaprófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fer fram laugardagin 27. janúar næstkomandi og bítast þau Áslaug Friðriksdóttir, Eyþór Arnalds, Kjartan Magnússon, Viðar Guðjohnsen og Vilhjálmur Bjarnason um sætið. Viðtal Kristjáns Kristjánssonar í Sprengisandi við Eyþór, Helgu Völu Helgadóttur og Guðlaugu Kristjánsdóttur má hlusta á í spilaranum hér að neðan. Sveitarstjórnarkosningar Tengdar fréttir Fimm vilja leiða Sjálfstæðisflokkinn í borginni Framboðsslagur innan Sjálfstæðisflokksins fyrirliggjandi. 10. janúar 2018 16:12 Twitter-notendur svara Eyþóri með myllumerkinu #TómirVagnar: „Ég skora á hann að taka einhvern tímann strætó“ Greinin umdeilda birtist í Morgunblaðinu á mánudag og hafði Eyþór þar samgöngumál í Reykjavík til umfjöllunar. 18. janúar 2018 22:45 Góðan daginn, Viðar Guðjohnsen hérna megin Harðlínuhægrimaður vill leiða Sjálfstæðismenn í borginni. 11. janúar 2018 14:05 Mest lesið „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Innlent Svipar til gamalla óupplýstra rána Innlent Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Innlent Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Innlent Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Innlent Fleiri fréttir Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Haraldur mátti ekki hækka launin en Sigríður ekki heldur lækka þau Læknafélagið mótfallið lögleiðingu dánaraðastoðar „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Ekki viss hvort nokkru þurfi að breyta eftir tug milljóna króna þjófnað 546 Grindvíkingar vilja selja Þórkötlu húsið sitt Sjá meira
Kaupsýslumaðurinn Eyþór Arnalds, sem sækist eftir oddvitasæti í leiðtogakjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, er þeirrar skoðunar að hann eigi að stíga út úr öllum rekstri fjölmiðla nái hann kjöri í borginni. Þá bendir hann þeim sem eru áhugasamir um hagsmuni hans að lesa ítarlega umfjöllun Stundarinnar um málið. Eyþór var gestur þáttarins Sprengisands á Bylgjunni í dag, ásamt Helgu Völu Helgadóttur alþingismanni og Guðlaugu Kristjánsdóttur forseta bæjarstjórnar í Hafnarfirði og ræddu þau meðal annars borgarlínuna umdeildu og #MeToo-átakið.Íhugar að kaupa þúsund eintök af StundinniÞá var Eyþór, sem er umsvifamikill kaupsýslumaður og stærsti einstaki hluthafi í Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins, spurður út í mögulega hagsmunaárekstra verði hann kjörinn oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík. Eyþór sagði ljóst að hann þyrfti að hverfa frá ákveðnum verkefnum. „Ég þarf að stíga úr verkefnum og þess vegna var svolítið stór ákvörðun fyrir mig að fara í þetta. Ef ég tapa á laugardaginn þá er ég frjáls en ef ég vinn þá þarf ég að gera greinarmun á þessu tvennu.“Sjá einnig: Góðan daginn, Viðar Guðjohnsen hérna meginGuðlaugu lá þá forvitni á að vita hvar hægt væri að finna yfirlit yfir hagsmunaskráningu Eyþórs. „Í Stundinni,“ svaraði Eyþór um hæl. „Stundin hringdi í mig og ég veit að margir Sjálfstæðismenn svara ekki Stundinni en ég ákvað að svara þeim og þetta er tveggja blaðsíðna viðtal sem er tekið og prentað nákvæmlega allt sem ég sagði. Svo fóru þeir yfir þessi 26 fyrirtæki og þetta er allt prentað í Stundinni. Ég var að spá í að kaupa þúsund eintök og hafa á kosningaskrifstofunni.“ Þá kvaðst Eyþór ánægður með að fá símtal frá Stundinni um þessi mál og að hann hefði sjálfur ekkert að fela.Áslaug Friðriksdóttir, Eyþór Arnalds, Kjartan Magnússon, Viðar Guðjohnsen og Vilhjálmur Bjarnason sækjast eftir oddvitasæti Sjálfstæðismanna í Reykjavík.Vísir/Anton BrinkEngar beinagrindur í skápnumEyþór var auk þess inntur eftir því hvort það væri ekki ljóst að hann þyrfti að selja hlut sinn í Morgunblaðinu en eins og áður sagði er Eyþór stærsti einstaki hluthafi í Árvakri. „Nú eru einhverjir á þingi sem eiga í fjölmiðlum, ég bendi á það,“ sagði Eyþór . „Ég ætla að fara úr öllu sem er „konflikt“, það er það sem ég segi. Nú er ég ekki orðinn frambjóðandi, hvað þá kjörinn fulltrúi. En ég er búinn að svara öllum, það eru engar beinagrindur í skápnum, þær eru bara á borðinu.“ Þá var Eyþór krafinn um afdráttarlaust svar við spurningunni, þ.e. hvort hann þyrfti ekki að losna undan eignarhaldi í fjölmiðli yrði hann borgarfulltrúi. Eyþór sagði svo vera. „Ég er þeirrar skoðunar að ég eigi að fara úr því. En eitt skref í einu, það er prófkjör fyrst. En ég er prinsippmaður.“ Leiðtogaprófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fer fram laugardagin 27. janúar næstkomandi og bítast þau Áslaug Friðriksdóttir, Eyþór Arnalds, Kjartan Magnússon, Viðar Guðjohnsen og Vilhjálmur Bjarnason um sætið. Viðtal Kristjáns Kristjánssonar í Sprengisandi við Eyþór, Helgu Völu Helgadóttur og Guðlaugu Kristjánsdóttur má hlusta á í spilaranum hér að neðan.
Sveitarstjórnarkosningar Tengdar fréttir Fimm vilja leiða Sjálfstæðisflokkinn í borginni Framboðsslagur innan Sjálfstæðisflokksins fyrirliggjandi. 10. janúar 2018 16:12 Twitter-notendur svara Eyþóri með myllumerkinu #TómirVagnar: „Ég skora á hann að taka einhvern tímann strætó“ Greinin umdeilda birtist í Morgunblaðinu á mánudag og hafði Eyþór þar samgöngumál í Reykjavík til umfjöllunar. 18. janúar 2018 22:45 Góðan daginn, Viðar Guðjohnsen hérna megin Harðlínuhægrimaður vill leiða Sjálfstæðismenn í borginni. 11. janúar 2018 14:05 Mest lesið „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Innlent Svipar til gamalla óupplýstra rána Innlent Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Innlent Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Innlent Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Innlent Fleiri fréttir Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Haraldur mátti ekki hækka launin en Sigríður ekki heldur lækka þau Læknafélagið mótfallið lögleiðingu dánaraðastoðar „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Ekki viss hvort nokkru þurfi að breyta eftir tug milljóna króna þjófnað 546 Grindvíkingar vilja selja Þórkötlu húsið sitt Sjá meira
Fimm vilja leiða Sjálfstæðisflokkinn í borginni Framboðsslagur innan Sjálfstæðisflokksins fyrirliggjandi. 10. janúar 2018 16:12
Twitter-notendur svara Eyþóri með myllumerkinu #TómirVagnar: „Ég skora á hann að taka einhvern tímann strætó“ Greinin umdeilda birtist í Morgunblaðinu á mánudag og hafði Eyþór þar samgöngumál í Reykjavík til umfjöllunar. 18. janúar 2018 22:45
Góðan daginn, Viðar Guðjohnsen hérna megin Harðlínuhægrimaður vill leiða Sjálfstæðismenn í borginni. 11. janúar 2018 14:05