Sóknarprestar ósammála biskupi: „Mín bankaleynd stoppar þar sem þín budda byrjar“ Aðalheiður Ámundadóttir skrifar 23. október 2017 22:00 Sóknarprestar Laugarneskirkju og Akureyrarkirkju deila ekki viðhorfi Biskups til gagnaleka. Vísir „Sannleikurinn mun gjöra yður frjálsa,“ segir Davíð Þór Jónsson, sóknarprestur í Laugarneskirkju. Hann deilir ekki þeim viðhorfum sem Biskup Íslands lýsti í viðtali við Morgunblaðið í dag, um að það sé siðferðilega rangt að leiða sannleikann í ljós með stolnum gögnum. Ummælin hafa vakið mikla athygli og eru þau sett í þrábeint samhengi við Lögbannsmálið svokallaða sem hefur verið í deiglunni að undanförnu. „Mín skoðun er sú að lög sem leyna okkur sannleika sem varða raunverulega hag okkar, eru ólög og þau lög ber að hunsa.“ Davíð ítrekar þó að gera verði greinarmun á því hvenær við erum að hnýsast í einkamál náungans okkur til afþreyingar og hvenær náunginn er að leyna einhverju sem varði okkur raunverulega. „Þú hefur ekki rétt til að hnýsast í mín einkamál en réttur minn til bankaleyndar hlýtur að stoppa þar sem þín budda byrjar,“ segir Davíð. Hann segir Biskup í rauninni bara vera að hvetja til þess að farið verði að lögum. „En við megum ekki gleyma því að ef Rosa Parks hefði farið að lögum þá væri enn þá aðskilnaðarstefna í Bandaríkjunum. Ef Ghandi hefði farið að lögum þá væri Indland sennilega ennþá hluti af breska heimsveldinu. Nelson Mandela var ekki í fangelsi af því hann var svo löghlýðinn. Þegar við sjáum mynd af Jesú Kristi á krossinum, þá erum við að horfa á mynd af glæpamanni sem var dæmdur samkvæmt lögum sem giltu í ríkinu sem hann starfaði í. Sum lög verður einfaldlega að brjóta,“ segir Davíð. Hann segir Biskup þarna vera að tjá persónulega skoðun, en ekki skoðun kirkjunnar.Hildur Eir Bolladóttir, prestur í Akureyrarkirkju.Vísir/Bjarni„Kirkjan er fólkið sem tilheyrir henni; fólkið sem tekur þátt í skoðanakönnunum. Viðhorf almennings samkvæmt skoðanakönnunum eru þannig viðhorf kirkjunnar,“ segir Davíð.Fullt leyfi til að vera óþægilegur í kirkjunni Hildur Eir Bolladóttir, prestur í Akureyrarkirkju, deilir þessu viðhorfi Davíðs. Hún fagnar því þó að biskup tjái sig opinberlega, þótt hún deili ekki endilega viðhorfum hennar. „Biskup er sjálfstæður kennimaður rétt eins og ég er sjálfstæður kennimaður og það er mikilvægt að ég þori að hafa skoðanir á hlutum, vitandi samt að það er ekki endilega víst að ég hafi á endanum alltaf rétt fyrir mér,“ segir Hildur. „En með mína þekkingu og þá guðfræði sem ég hef stúderað og ástundað, þarf ég að þora að standa og falla með skoðunum mínum. Við viljum ekki hafa kennimenn í landinu sem þora aldrei að segja neitt.“ Aðspurð segir Hildur Eir fullt tjáningarfrelsi ríkja í kirkjunni. „Já, annars væri löngu búið að svipta mig hempunni,“ segir hún. „Maður hefur fullt leyfi til að vera óþægilegur í kirkjunni. Jafnvel meira leyfi þar en í stjórnmálaflokkum.“ Tengdar fréttir Biskup segir aldrei réttlætanlegt að stela gögnum til að fá fram sannleikann Reynir Traustason segir sig úr þjóðkirkjunni. 23. október 2017 09:09 Mest lesið Leiðin í vinnuna smám saman þrefaldast: „Þetta er eins og í einhverri bíómynd“ Innlent Fannst hennar tími vera kominn Innlent Miðflokkurinn staðfestir sig sem þriðji stærsti flokkurinn Innlent Ofbeldisbrotum fjölgar á sama tíma og lögreglumönnum fækkar Innlent Verkefnið skapi níutíu störf og meðallaunin verði um 1,4 milljón á mánuði Innlent Landeigendur höfða mál gegn ríkinu vegna Hvammsvirkjunar Innlent Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Erlent Össur segir Jóni Gnarr að „hætta að væla“ Innlent Svona var Pallborðið með Höllu, Katrínu og Steinunni Ólínu Innlent Fluttur á sjúkrahús eftir að ekið var á Útlendingastofnun Innlent Fleiri fréttir Ofbeldisbrotum fjölgar á sama tíma og lögreglumönnum fækkar Landeigendur höfða mál gegn ríkinu vegna Hvammsvirkjunar Fannst hennar tími vera kominn Sakar ríkisstjórnina um að ætla að afhenda fiskeldinu firðina til eilífðar Miðflokkurinn staðfestir sig sem þriðji stærsti flokkurinn Leiðin í vinnuna smám saman þrefaldast: „Þetta er eins og í einhverri bíómynd“ Ákærð fyrir að hafa orðið syni sínum að bana Stórfjölgun ofbeldisbrota, firðir í hættu og hönnunarstuldur „Við næðum eflaust meiri árangri ef borgarstjóri myndi væla minna“ Össur segir Jóni Gnarr að „hætta að væla“ Staðfesta gæsluvarðhald tveggja sakborninga Óbreytt frumvarp þýði útrýmingu villta laxins Fluttur á sjúkrahús eftir að ekið var á Útlendingastofnun Húsfélagið má ekki klippa á tengil rafvirkjameistara Sjálfstæðisflokkurinn kvelji barnafólk með vettlingagjörningi Enn kröftugt gos úr einum gíg Börn sofi ekki úti í gosmóðunni suðvestanlands Velkomin í Verbúðina II Halla Hrund fjórfaldar fylgi sitt á milli kannanna Ákærðir fyrir þaulskipulagða skotárás gegn feðginum á aðfangadag Sextán hundruð vettlingar fyrir börnin sem bíða Verkefnið skapi níutíu störf og meðallaunin verði um 1,4 milljón á mánuði Aðstoðarrektor í Bandaríkjunum verður rektor Háskólans á Akureyri Bjarni vill taka daginn snemma Svona var Pallborðið með Höllu, Katrínu og Steinunni Ólínu Freista þess að halda veitingamanninum bak við lás og slá Furðar sig á ávirðingum vegna kaupa á vínarbrauði Tvö manndráp á skömmum tíma „Það er ástæða fyrir því að farið er í að rannsaka þetta andlát“ Vill geta vísað flóttafólki úr landi innan tveggja sólarhringa Sjá meira
„Sannleikurinn mun gjöra yður frjálsa,“ segir Davíð Þór Jónsson, sóknarprestur í Laugarneskirkju. Hann deilir ekki þeim viðhorfum sem Biskup Íslands lýsti í viðtali við Morgunblaðið í dag, um að það sé siðferðilega rangt að leiða sannleikann í ljós með stolnum gögnum. Ummælin hafa vakið mikla athygli og eru þau sett í þrábeint samhengi við Lögbannsmálið svokallaða sem hefur verið í deiglunni að undanförnu. „Mín skoðun er sú að lög sem leyna okkur sannleika sem varða raunverulega hag okkar, eru ólög og þau lög ber að hunsa.“ Davíð ítrekar þó að gera verði greinarmun á því hvenær við erum að hnýsast í einkamál náungans okkur til afþreyingar og hvenær náunginn er að leyna einhverju sem varði okkur raunverulega. „Þú hefur ekki rétt til að hnýsast í mín einkamál en réttur minn til bankaleyndar hlýtur að stoppa þar sem þín budda byrjar,“ segir Davíð. Hann segir Biskup í rauninni bara vera að hvetja til þess að farið verði að lögum. „En við megum ekki gleyma því að ef Rosa Parks hefði farið að lögum þá væri enn þá aðskilnaðarstefna í Bandaríkjunum. Ef Ghandi hefði farið að lögum þá væri Indland sennilega ennþá hluti af breska heimsveldinu. Nelson Mandela var ekki í fangelsi af því hann var svo löghlýðinn. Þegar við sjáum mynd af Jesú Kristi á krossinum, þá erum við að horfa á mynd af glæpamanni sem var dæmdur samkvæmt lögum sem giltu í ríkinu sem hann starfaði í. Sum lög verður einfaldlega að brjóta,“ segir Davíð. Hann segir Biskup þarna vera að tjá persónulega skoðun, en ekki skoðun kirkjunnar.Hildur Eir Bolladóttir, prestur í Akureyrarkirkju.Vísir/Bjarni„Kirkjan er fólkið sem tilheyrir henni; fólkið sem tekur þátt í skoðanakönnunum. Viðhorf almennings samkvæmt skoðanakönnunum eru þannig viðhorf kirkjunnar,“ segir Davíð.Fullt leyfi til að vera óþægilegur í kirkjunni Hildur Eir Bolladóttir, prestur í Akureyrarkirkju, deilir þessu viðhorfi Davíðs. Hún fagnar því þó að biskup tjái sig opinberlega, þótt hún deili ekki endilega viðhorfum hennar. „Biskup er sjálfstæður kennimaður rétt eins og ég er sjálfstæður kennimaður og það er mikilvægt að ég þori að hafa skoðanir á hlutum, vitandi samt að það er ekki endilega víst að ég hafi á endanum alltaf rétt fyrir mér,“ segir Hildur. „En með mína þekkingu og þá guðfræði sem ég hef stúderað og ástundað, þarf ég að þora að standa og falla með skoðunum mínum. Við viljum ekki hafa kennimenn í landinu sem þora aldrei að segja neitt.“ Aðspurð segir Hildur Eir fullt tjáningarfrelsi ríkja í kirkjunni. „Já, annars væri löngu búið að svipta mig hempunni,“ segir hún. „Maður hefur fullt leyfi til að vera óþægilegur í kirkjunni. Jafnvel meira leyfi þar en í stjórnmálaflokkum.“
Tengdar fréttir Biskup segir aldrei réttlætanlegt að stela gögnum til að fá fram sannleikann Reynir Traustason segir sig úr þjóðkirkjunni. 23. október 2017 09:09 Mest lesið Leiðin í vinnuna smám saman þrefaldast: „Þetta er eins og í einhverri bíómynd“ Innlent Fannst hennar tími vera kominn Innlent Miðflokkurinn staðfestir sig sem þriðji stærsti flokkurinn Innlent Ofbeldisbrotum fjölgar á sama tíma og lögreglumönnum fækkar Innlent Verkefnið skapi níutíu störf og meðallaunin verði um 1,4 milljón á mánuði Innlent Landeigendur höfða mál gegn ríkinu vegna Hvammsvirkjunar Innlent Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Erlent Össur segir Jóni Gnarr að „hætta að væla“ Innlent Svona var Pallborðið með Höllu, Katrínu og Steinunni Ólínu Innlent Fluttur á sjúkrahús eftir að ekið var á Útlendingastofnun Innlent Fleiri fréttir Ofbeldisbrotum fjölgar á sama tíma og lögreglumönnum fækkar Landeigendur höfða mál gegn ríkinu vegna Hvammsvirkjunar Fannst hennar tími vera kominn Sakar ríkisstjórnina um að ætla að afhenda fiskeldinu firðina til eilífðar Miðflokkurinn staðfestir sig sem þriðji stærsti flokkurinn Leiðin í vinnuna smám saman þrefaldast: „Þetta er eins og í einhverri bíómynd“ Ákærð fyrir að hafa orðið syni sínum að bana Stórfjölgun ofbeldisbrota, firðir í hættu og hönnunarstuldur „Við næðum eflaust meiri árangri ef borgarstjóri myndi væla minna“ Össur segir Jóni Gnarr að „hætta að væla“ Staðfesta gæsluvarðhald tveggja sakborninga Óbreytt frumvarp þýði útrýmingu villta laxins Fluttur á sjúkrahús eftir að ekið var á Útlendingastofnun Húsfélagið má ekki klippa á tengil rafvirkjameistara Sjálfstæðisflokkurinn kvelji barnafólk með vettlingagjörningi Enn kröftugt gos úr einum gíg Börn sofi ekki úti í gosmóðunni suðvestanlands Velkomin í Verbúðina II Halla Hrund fjórfaldar fylgi sitt á milli kannanna Ákærðir fyrir þaulskipulagða skotárás gegn feðginum á aðfangadag Sextán hundruð vettlingar fyrir börnin sem bíða Verkefnið skapi níutíu störf og meðallaunin verði um 1,4 milljón á mánuði Aðstoðarrektor í Bandaríkjunum verður rektor Háskólans á Akureyri Bjarni vill taka daginn snemma Svona var Pallborðið með Höllu, Katrínu og Steinunni Ólínu Freista þess að halda veitingamanninum bak við lás og slá Furðar sig á ávirðingum vegna kaupa á vínarbrauði Tvö manndráp á skömmum tíma „Það er ástæða fyrir því að farið er í að rannsaka þetta andlát“ Vill geta vísað flóttafólki úr landi innan tveggja sólarhringa Sjá meira
Biskup segir aldrei réttlætanlegt að stela gögnum til að fá fram sannleikann Reynir Traustason segir sig úr þjóðkirkjunni. 23. október 2017 09:09