NBA: Skvettubræðurnir sjóðheitir með Golden State í nótt | Myndbönd Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. janúar 2018 07:15 Stephen Curry. Vísir/Getty NBA-meistarar Golden State Warriors héldu sigurgöngu sinni áfram á útivelli í NBA-deildinni í körfubolta í nótt og jöfnuðu nú félagsmetið yfir flesta útisigra í röð.Skvettubræðurnir Klay Thompson og Stephen Curry voru sjóðheitir í 119-112 sigri Golden State Warriors á Chicago Bulls en þetta var fjórtándi útisigur liðsins í röð. Klay Thompson skoraði 38 stig í leiknum og Stephen Curry var með 30 stig. Þeir hittu saman úr 13 af 24 þriggja stiga skotum sínum. Kevin Durant skoraði 19 stig en var einnig með 8 fráköst og 7 stoðsendingar. Golden State hefur verið að leika talsvert án lykilmanna síðustu vikur og Curry missti meðal annars af mörgum leikjum. Að þessu sinni vantaði þá Draymond Green og Andre Iguodala sem eru meiddir. Golden State er þegar búið að jafna félagsmetið og vantar nú aðeins tvo útisigra til viðbótar til þess að jafna NBA-metið sem er í eigu Los Angeles Lakers liðsins frá 1971-72 tímabilinu. Næsti útileikur er hinsvegar á móti Houston Rockets. Nikola Mirotic skoraði 24 stig fyrir Chicago Bulls sem hefur unnið 14 af síðustu 22 leikjum sínum eftir að hafa byrjað tímabilið á því að vinna aðeins 3 af fyrstu 23 leikjum sínum. Robin Lopez og nýliðinn Kris Dunn voru báðir með sextán stig.Carmelo Anthony skoraði 27 stig þegar Oklahoma City Thunder vann Los Angeles Lakers 114-90. Þetta var áttundi leikurinn í röð sem Lakers tapar þegar liðið er án nýliðans Lonzo Ball. Steven Adams var með 21 stig og 10 fráköst og Russell Westbrook bætti við 19 stigum og 7 stoðsendingum.Kent Bazemore skoraði sigurkörfuna 2,1 sekúndum fyrir leikslok þegar Atlanta Hawks vann upp 19 stiga forystu og vann New Orleans Pelicans á endanum með einu stigi, 94-93. Bazemore var stigahæstur hjá Atlanta með 20 stig en skoraði mest fyrir Pelíkanana eða 22 stig en DeMarcus Cousins var með 19 stig og 14 fráköst.LaMarcus Aldridge skoraði 34 stig og Patty Mills smellti niður sjö þriggja stiga körfum þegar San Antonio Spurs vann Brooklyn Nets 100-95. Kawhi Leonard var ekki með Spurs og mikil óvissa er í kringum framhaldið hjá honum. Mills endaði með 25 stig og þá var Pau Gasol með 13 stig, 12 fráköst og 7 stoðsendingar.Úrslitin úr öllum leikjum næturinnar í NBA: Los Angeles Clippers - Denver Nuggets 109-104 Sacramento Kings - Utah Jazz 105-120 Chicago Bulls - Golden State Warriors 112-119 Memphis Grizzlies - New York Knicks 105-99 Milwaukee Bucks - Miami Heat 101-106 Oklahoma City Thunder - Los Angeles Lakers 114-90 Atlanta Hawks - New Orleans Pelicans 94-93 Brooklyn Nets - San Antonio Spurs 95-100 Toronto Raptors - Detroit Pistons 96-91 Charlotte Hornets - Washington Wizards 133-109 NBA Mest lesið Tveir nítján ára handteknir fyrir nauðgun Enski boltinn Bergrós aftur best í heimi og fjögur frá Íslandi í undanúrslitum Sport Slapp við rautt þrátt fyrir fólskubrot: „Einhver þarf að útskýra þetta fyrir mér“ Enski boltinn „Ég hefði bara átt að taka leikhlé“ Handbolti Segir sína menn ekki verðskulda Evrópusæti Enski boltinn Fyllir Slot upp í tómarúmið sem Klopp skilur eftir sig? Enski boltinn Ótrúlegur lækningamáttur í dalnum vekur furðu Íslenski boltinn Segir sitt hlutverk að fá leikmenn til að trúa á verkefnið Enski boltinn „Ég er bara mjög spenntur, þeir eru klárlega ‘the team to beat’“ Körfubolti „Maður hugsar ekki þannig sem þjálfari“ Körfubolti Fleiri fréttir „Ég er bara mjög spenntur, þeir eru klárlega ‘the team to beat’“ „Maður hugsar ekki þannig sem þjálfari“ Uppgjör og viðtöl: Álftanes - Keflavík 85-114 | Sjóðheit Keflavíkursókn blés nýliðana burt Murray kramdi Lakers-hjörtun Viðar Örn: Stoltur af liðinu fyrir að skilja allt eftir á gólfinu Einar Árni hættur hjá Hetti „Erfitt að vinna þá þrisvar sinnum í röð“ Aþena er komið í úrslitaeinvígi um sæti í Subway-deild kvenna „Fannst að við hefðum átt að ná þessum mómentum fyrr“ Uppgjör: Þór Þ. - Njarðvík 84-91 | Gestirnir tryggðu sér oddaleik Uppgjör og viðtöl: Höttur - Valur 97-102 | Valsmenn í undanúrslit eftir framlengdan leik á Egilsstöðum Losnar stjarna Aþenu úr frystiklefa Brynjars Karls? Skoraði 35 stig í fyrri hálfleik „Mér finnst þetta fullmikið“ Fær þriggja leikja bann fyrir pungspark á Hlíðarenda Kawhi-lausir Clippers í engum vandræðum með Mavericks Svanirnir hefja flug í úrslitakeppninni „Við algjörlega frusum“ „Maður harkar þetta bara af sér og heldur áfram fyrir liðið“ Uppgjörið: Stjarnan - Haukar 73 - 64 | Ótrúleg endurkoma tryggði Stjörnunni oddaleik Mætti eins og Gru í „Despicable Me“ og kláraði síðan Lakers Gaf á sjálfan sig, tróð með látum og fór svo meiddur af velli Úlfarnir með stórsigur í fyrsta leik gegn Suns Þórsarar unnu oddaleikinn og halda áfram í undanúrslit Öruggur sigur í fyrsta leik úrslitakeppninnar Miami og New Orleans síðustu liðin inn: Svona lítur úrslitakeppni NBA út „Við treystum á Remy og guð í kvöld“ „Ég elska Keflavík og ég elska Ísland“ „Særð dýr eru hættulegustu dýrin“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Álftanes 88-84 | Keflvíkingar tóku forystuna í hörkuleik Sjá meira
NBA-meistarar Golden State Warriors héldu sigurgöngu sinni áfram á útivelli í NBA-deildinni í körfubolta í nótt og jöfnuðu nú félagsmetið yfir flesta útisigra í röð.Skvettubræðurnir Klay Thompson og Stephen Curry voru sjóðheitir í 119-112 sigri Golden State Warriors á Chicago Bulls en þetta var fjórtándi útisigur liðsins í röð. Klay Thompson skoraði 38 stig í leiknum og Stephen Curry var með 30 stig. Þeir hittu saman úr 13 af 24 þriggja stiga skotum sínum. Kevin Durant skoraði 19 stig en var einnig með 8 fráköst og 7 stoðsendingar. Golden State hefur verið að leika talsvert án lykilmanna síðustu vikur og Curry missti meðal annars af mörgum leikjum. Að þessu sinni vantaði þá Draymond Green og Andre Iguodala sem eru meiddir. Golden State er þegar búið að jafna félagsmetið og vantar nú aðeins tvo útisigra til viðbótar til þess að jafna NBA-metið sem er í eigu Los Angeles Lakers liðsins frá 1971-72 tímabilinu. Næsti útileikur er hinsvegar á móti Houston Rockets. Nikola Mirotic skoraði 24 stig fyrir Chicago Bulls sem hefur unnið 14 af síðustu 22 leikjum sínum eftir að hafa byrjað tímabilið á því að vinna aðeins 3 af fyrstu 23 leikjum sínum. Robin Lopez og nýliðinn Kris Dunn voru báðir með sextán stig.Carmelo Anthony skoraði 27 stig þegar Oklahoma City Thunder vann Los Angeles Lakers 114-90. Þetta var áttundi leikurinn í röð sem Lakers tapar þegar liðið er án nýliðans Lonzo Ball. Steven Adams var með 21 stig og 10 fráköst og Russell Westbrook bætti við 19 stigum og 7 stoðsendingum.Kent Bazemore skoraði sigurkörfuna 2,1 sekúndum fyrir leikslok þegar Atlanta Hawks vann upp 19 stiga forystu og vann New Orleans Pelicans á endanum með einu stigi, 94-93. Bazemore var stigahæstur hjá Atlanta með 20 stig en skoraði mest fyrir Pelíkanana eða 22 stig en DeMarcus Cousins var með 19 stig og 14 fráköst.LaMarcus Aldridge skoraði 34 stig og Patty Mills smellti niður sjö þriggja stiga körfum þegar San Antonio Spurs vann Brooklyn Nets 100-95. Kawhi Leonard var ekki með Spurs og mikil óvissa er í kringum framhaldið hjá honum. Mills endaði með 25 stig og þá var Pau Gasol með 13 stig, 12 fráköst og 7 stoðsendingar.Úrslitin úr öllum leikjum næturinnar í NBA: Los Angeles Clippers - Denver Nuggets 109-104 Sacramento Kings - Utah Jazz 105-120 Chicago Bulls - Golden State Warriors 112-119 Memphis Grizzlies - New York Knicks 105-99 Milwaukee Bucks - Miami Heat 101-106 Oklahoma City Thunder - Los Angeles Lakers 114-90 Atlanta Hawks - New Orleans Pelicans 94-93 Brooklyn Nets - San Antonio Spurs 95-100 Toronto Raptors - Detroit Pistons 96-91 Charlotte Hornets - Washington Wizards 133-109
NBA Mest lesið Tveir nítján ára handteknir fyrir nauðgun Enski boltinn Bergrós aftur best í heimi og fjögur frá Íslandi í undanúrslitum Sport Slapp við rautt þrátt fyrir fólskubrot: „Einhver þarf að útskýra þetta fyrir mér“ Enski boltinn „Ég hefði bara átt að taka leikhlé“ Handbolti Segir sína menn ekki verðskulda Evrópusæti Enski boltinn Fyllir Slot upp í tómarúmið sem Klopp skilur eftir sig? Enski boltinn Ótrúlegur lækningamáttur í dalnum vekur furðu Íslenski boltinn Segir sitt hlutverk að fá leikmenn til að trúa á verkefnið Enski boltinn „Ég er bara mjög spenntur, þeir eru klárlega ‘the team to beat’“ Körfubolti „Maður hugsar ekki þannig sem þjálfari“ Körfubolti Fleiri fréttir „Ég er bara mjög spenntur, þeir eru klárlega ‘the team to beat’“ „Maður hugsar ekki þannig sem þjálfari“ Uppgjör og viðtöl: Álftanes - Keflavík 85-114 | Sjóðheit Keflavíkursókn blés nýliðana burt Murray kramdi Lakers-hjörtun Viðar Örn: Stoltur af liðinu fyrir að skilja allt eftir á gólfinu Einar Árni hættur hjá Hetti „Erfitt að vinna þá þrisvar sinnum í röð“ Aþena er komið í úrslitaeinvígi um sæti í Subway-deild kvenna „Fannst að við hefðum átt að ná þessum mómentum fyrr“ Uppgjör: Þór Þ. - Njarðvík 84-91 | Gestirnir tryggðu sér oddaleik Uppgjör og viðtöl: Höttur - Valur 97-102 | Valsmenn í undanúrslit eftir framlengdan leik á Egilsstöðum Losnar stjarna Aþenu úr frystiklefa Brynjars Karls? Skoraði 35 stig í fyrri hálfleik „Mér finnst þetta fullmikið“ Fær þriggja leikja bann fyrir pungspark á Hlíðarenda Kawhi-lausir Clippers í engum vandræðum með Mavericks Svanirnir hefja flug í úrslitakeppninni „Við algjörlega frusum“ „Maður harkar þetta bara af sér og heldur áfram fyrir liðið“ Uppgjörið: Stjarnan - Haukar 73 - 64 | Ótrúleg endurkoma tryggði Stjörnunni oddaleik Mætti eins og Gru í „Despicable Me“ og kláraði síðan Lakers Gaf á sjálfan sig, tróð með látum og fór svo meiddur af velli Úlfarnir með stórsigur í fyrsta leik gegn Suns Þórsarar unnu oddaleikinn og halda áfram í undanúrslit Öruggur sigur í fyrsta leik úrslitakeppninnar Miami og New Orleans síðustu liðin inn: Svona lítur úrslitakeppni NBA út „Við treystum á Remy og guð í kvöld“ „Ég elska Keflavík og ég elska Ísland“ „Særð dýr eru hættulegustu dýrin“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Álftanes 88-84 | Keflvíkingar tóku forystuna í hörkuleik Sjá meira
Uppgjör og viðtöl: Höttur - Valur 97-102 | Valsmenn í undanúrslit eftir framlengdan leik á Egilsstöðum