Verka kjötið við góðar aðstæður
Svínabændur í Laxárdal í Skeiða og Gnúpverjahreppi hafa opnað sína eigin kjötvinnslu þar sem hjónin á bænum verka kjötið við góðar aðstæður. Svínin á bænum eru að mestu alin upp á íslensku byggi sem bændurnir rækta. Magnús Hlynur Hreiðarsson skoðaði nýju kjötvinnsluna.