Skila auðu
Þingmenn sænska Vinstriflokksins munu skila auðu í fyrirhugaðri atkvæðagreiðslu í sænska þinginu um Stefan Löfven, formann Jafnaðarmanna, sem næsta forsætisráðherra Svíþjóðar. Atkvæðagreiðslan fer að öllum líkindum fram á föstudag. Frá þessu greindi Jonas Sjöstedt, formaður Vinstriflokksins, í morgun.