Settur í straff á Twitter
Fréttaveitan Infowars, sem er á vegum hins umdeilda Alex Jones, liggur niðri vegna tölvuárása. Í nótt var Jones settur í straff á Twitter en fjöldi stórfyrirtækja tekur þessa stundina þátt í skipulögðum aðgerðum til að sniðganga hann og skoðanabræður hans.