Smáþörungar ræktaðir við Hellisheiðarvirkjun
Verið er að hefja ræktun smáþörunga í tengslum við Hellisheiðarvirkjun, sem mun leggja eldinu til rafmagn, heitt og kalt vatn og lofttegundir sem falla til í virkjuninni. Fyrstu afurðirnar eru væntanlegar á markað á næsta ári.