Kynna Wow Air fyrir fjárfestum
Skúli Mogensen, stofnandi og forstjóri Wow Air, er um þessar mundir á fundaferð um Evrópu til að kynna Wow Air fyrir fjárfestum í tengslum við skuldabréfaútboð hjá Pareto Securities. Wow Air hyggst sækja sér allt að tólf milljarða króna með útgáfu nýrra skuldabréfa.