Útgefin byggingarleyfi aldrei fleiri
Fjögur þúsund íbúðir vantar inn á íbúðamarkaðinn í Reykjavík á næstu árum til þess að fullnægja þörf fyrir nýju húsnæði. Útgefin byggingarleyfi í höfuðborginni á einu ári hafa aldrei verið eins mörg eins og í ár. Borgarstjóri segir að félagslegum úbúðum geti fjölgað um allt að sjö hundruð á næstu fimm árum.