Landsréttur staðfestir 16 ára dóm
Landsréttur hefur staðfest sextán ára fangelsisdóm yfir Khaled Cairo. Khaled var dæmdur til sextán ára fangelsisvistar í Héraðsdómi Reykjavíkur í apríl í fyrra fyrir að hafa banað Sanitu Brauna á heimili hennar á Hagamel í vesturbæ Reykjavíkur 21. september 2017.