Nemi stakk annan nema

Átján ára piltur stakk pilt á sama aldri í Fjölsmiðjunni í Kópavogi í dag (LUM) Pilturinn var handtekinn og er málið nú í höndum lögreglu. Fjölsmiðjan í Kópavogi er vinnusetur fyrir fólk á aldrinum 18-24 ára til að þjálfa það fyrir vinnumarkað eða áframhaldandi nám. Piltarnir tveir eru nemar í Fjölsmiðjunni og átti árásin sér stað rétt eftir hádegi. Frekari upplýsingar um hinn slasaða hafa ekki fengist.

21
00:28

Vinsælt í flokknum Fréttir