Íslandsmethafinn sér ekki eftir því að hafa valið frjálsar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. janúar 2018 06:00 Tiana Ósk með gullverðlaunapeningana sem hún vann um helgina. vísir/anton Hin 17 ára Tiana Ósk Whitworth úr ÍR stal senunni á Stórmóti ÍR í frjálsum íþróttum sem fór fram í Laugardalnum um helgina. Á laugardaginn kom Tiana fyrst í mark í úrslitum í 60 metra hlaupi kvenna á tímanum 7,47 sekúndum. Hún sló þar með þriggja ára gamalt Íslandsmet Hrafnhild Eirar R. Hermóðsdóttur um þrjá hundruðustu úr sekúndu. Hrafnhild varð einmitt í 2. sæti í úrslitahlaupinu á laugardaginn á 7,66 sekúndum. Tiana lét sér ekki nægja gull og Íslandsmet í 60 metra hlaupi heldur bætti hún öðrum gullverðlaunum í safnið með því að vinna 200 metra hlaupið í gær. Hún hljóp á 24,39 sekúndum sem er hennar besti tími í greininni. Íslandsmet Silju Úlfarsdóttur frá 2004 er 23,79 sekúndur.Íslandsmetahlaup Tiönu má sjá hér að neðan en myndbandið er af vef Silfursins.„Þetta gekk vonum framar og ég bjóst ekki við þessu á fyrsta móti. Ég er mjög ánægð með helgina,“ sagði Tiana í samtali við Fréttablaðið í gær. „Þetta var alls ekki eitthvað sem ég stefndi að strax. Ég var búin að hugsa um þetta en alls ekki á fyrsta móti. Það er alltaf gaman að hlaupa með Hrafnhild, hún er svo ótrúlega flott. Þetta kom mér á óvart. Ég er enn að ná þessu.“ Tiana segist hafa lagt mikla vinnu í að bæta sig í 200 metra hlaupi og því hafi árangurinn í gær verið sérstaklega ánægjulegur. „Þetta var besti tíminn minn hingað til. Aðalgreinarnar mínar eru 60 og 100 metra hlaup en ég reyni líka að einbeita mér að 200 metrunum. „Startið“ er mín sterkasta hlið en ég er að vinna í hraðaþoli,“ sagði Tiana.Tiana Ósk var afar ánægð með uppskeru helgarinnar.vísir/antonÍslandsmethafinn nýkrýndi byrjaði að æfa frjálsar íþróttir fyrir nokkrum árum en var áður í fimleikum. „Ég held ég hafi byrjað 2013. Íþróttakennarinn minn í grunnskóla fékk mig til að prófa eina frjálsíþróttaæfingu og þetta var strax það skemmtilegasta sem ég hafði prófað. Þá henti ég mér strax í þetta,“ sagði Tiana. „Ég var lengi í fimleikum og það var erfið ákvörðun hvort ég ætti að hætta í þeim og byrja í frjálsum. En ég sé alls ekki eftir því. Að æfa frjálsar er það skemmtilegasta sem ég geri.“ Þrátt fyrir árangur helgarinnar er Tiana hvergi nærri hætt. „Nú er bara að setja sér ný markmið. Mig langar að ná lágmörkum fyrir mót í sumar og einbeita mér að því að bæta tímana mína eins og ég get,“ sagði Tiana. Hún stefnir á að komast á HM U-20 ára sem fer fram í Tampere í Finnlandi í sumar. „Ég á betri tíma en lágmörkin í 100 metra hlaupi en ég þarf að hlaupa það aftur. Það er bara að koma sér í gott form og ná góðu hlaupi,“ sagði Tiana sem keppti m.a. á Smáþjóðaleikunum í San Marínó í fyrra. Hún endaði í 4. sæti í 100 metra hlaupi, 5. sæti í 200 metra hlaupi og var í sigurliði Íslands í 4x100 metra boðhlaupi. En hvert stefnir Tiana í framtíðinni? „Mig langar að ná eins langt í íþróttinni og ég get og halda áfram að bæta mig,“ sagði Tiana að lokum. Frjálsar íþróttir Mest lesið Tveir nítján ára handteknir fyrir nauðgun Enski boltinn „Ég hefði bara átt að taka leikhlé“ Handbolti Segir sína menn ekki verðskulda Evrópusæti Enski boltinn Fyllir Slot upp í tómarúmið sem Klopp skilur eftir sig? Enski boltinn Slapp við rautt þrátt fyrir fólskubrot: „Einhver þarf að útskýra þetta fyrir mér“ Enski boltinn Segir sitt hlutverk að fá leikmenn til að trúa á verkefnið Enski boltinn „Maður hugsar ekki þannig sem þjálfari“ Körfubolti Ótrúlegur lækningamáttur í dalnum vekur furðu Íslenski boltinn „Ég er bara mjög spenntur, þeir eru klárlega ‘the team to beat’“ Körfubolti Dagskráin í dag: Oddaleikur í Ólafssal, Hákon Arnar og margt fleira Sport Fleiri fréttir Slapp við rautt þrátt fyrir fólskubrot: „Einhver þarf að útskýra þetta fyrir mér“ Tveir nítján ára handteknir fyrir nauðgun Fyllir Slot upp í tómarúmið sem Klopp skilur eftir sig? Dagskráin í dag: Oddaleikur í Ólafssal, Hákon Arnar og margt fleira Segir sína menn ekki verðskulda Evrópusæti „Ég hefði bara átt að taka leikhlé“ Segir sitt hlutverk að fá leikmenn til að trúa á verkefnið Fjölnir fyrsta liðið í sextán liða úrslit „Ég er bara mjög spenntur, þeir eru klárlega ‘the team to beat’“ Juventus í bikarúrslit þrátt fyrir tap „Maður hugsar ekki þannig sem þjálfari“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Fram - Haukar 23-27 | Gestirnir sterkari undir lokin Uppgjör og viðtöl: Álftanes - Keflavík 85-114 | Sjóðheit Keflavíkursókn blés nýliðana burt Skytturnar tylltu sér á toppinn með stæl Ekroth og þrír aðrir í banni í næstu umferð Bestu deildarinnar Íslandsmeistararnir byrja undanúrslitaeinvígið á sigri Teitur Örn öflugur og Flensburg í góðri stöðu Fjórða vika Rocket League deildarinnar í fullum gangi í kvöld Glugginn að lokast – Íslandsmeistari í KFA og Málfríður heim Liverpool aftur á leiðinni til Adidas Skorar tíðast allra en missir enn af leikjum Liverpool Gary Martin til Ólafsvíkur Segir viðbrögð fjölmiðla til skammar Ísland hefði mátt taka 26 leikmenn á EM Milan ætlar að reka Pioli „Ég fékk alla vega mat í dag“ Højlund kvartaði yfir því að Fernandes gæfi ekki nógu oft á sig Heldur tryggð við Aston Villa þrátt fyrir áhuga annarra liða Ótrúlegur lækningamáttur í dalnum vekur furðu Árs bann fyrir árás á eftirlitsmann og þjálfarinn fékk líka bann Sjá meira
Hin 17 ára Tiana Ósk Whitworth úr ÍR stal senunni á Stórmóti ÍR í frjálsum íþróttum sem fór fram í Laugardalnum um helgina. Á laugardaginn kom Tiana fyrst í mark í úrslitum í 60 metra hlaupi kvenna á tímanum 7,47 sekúndum. Hún sló þar með þriggja ára gamalt Íslandsmet Hrafnhild Eirar R. Hermóðsdóttur um þrjá hundruðustu úr sekúndu. Hrafnhild varð einmitt í 2. sæti í úrslitahlaupinu á laugardaginn á 7,66 sekúndum. Tiana lét sér ekki nægja gull og Íslandsmet í 60 metra hlaupi heldur bætti hún öðrum gullverðlaunum í safnið með því að vinna 200 metra hlaupið í gær. Hún hljóp á 24,39 sekúndum sem er hennar besti tími í greininni. Íslandsmet Silju Úlfarsdóttur frá 2004 er 23,79 sekúndur.Íslandsmetahlaup Tiönu má sjá hér að neðan en myndbandið er af vef Silfursins.„Þetta gekk vonum framar og ég bjóst ekki við þessu á fyrsta móti. Ég er mjög ánægð með helgina,“ sagði Tiana í samtali við Fréttablaðið í gær. „Þetta var alls ekki eitthvað sem ég stefndi að strax. Ég var búin að hugsa um þetta en alls ekki á fyrsta móti. Það er alltaf gaman að hlaupa með Hrafnhild, hún er svo ótrúlega flott. Þetta kom mér á óvart. Ég er enn að ná þessu.“ Tiana segist hafa lagt mikla vinnu í að bæta sig í 200 metra hlaupi og því hafi árangurinn í gær verið sérstaklega ánægjulegur. „Þetta var besti tíminn minn hingað til. Aðalgreinarnar mínar eru 60 og 100 metra hlaup en ég reyni líka að einbeita mér að 200 metrunum. „Startið“ er mín sterkasta hlið en ég er að vinna í hraðaþoli,“ sagði Tiana.Tiana Ósk var afar ánægð með uppskeru helgarinnar.vísir/antonÍslandsmethafinn nýkrýndi byrjaði að æfa frjálsar íþróttir fyrir nokkrum árum en var áður í fimleikum. „Ég held ég hafi byrjað 2013. Íþróttakennarinn minn í grunnskóla fékk mig til að prófa eina frjálsíþróttaæfingu og þetta var strax það skemmtilegasta sem ég hafði prófað. Þá henti ég mér strax í þetta,“ sagði Tiana. „Ég var lengi í fimleikum og það var erfið ákvörðun hvort ég ætti að hætta í þeim og byrja í frjálsum. En ég sé alls ekki eftir því. Að æfa frjálsar er það skemmtilegasta sem ég geri.“ Þrátt fyrir árangur helgarinnar er Tiana hvergi nærri hætt. „Nú er bara að setja sér ný markmið. Mig langar að ná lágmörkum fyrir mót í sumar og einbeita mér að því að bæta tímana mína eins og ég get,“ sagði Tiana. Hún stefnir á að komast á HM U-20 ára sem fer fram í Tampere í Finnlandi í sumar. „Ég á betri tíma en lágmörkin í 100 metra hlaupi en ég þarf að hlaupa það aftur. Það er bara að koma sér í gott form og ná góðu hlaupi,“ sagði Tiana sem keppti m.a. á Smáþjóðaleikunum í San Marínó í fyrra. Hún endaði í 4. sæti í 100 metra hlaupi, 5. sæti í 200 metra hlaupi og var í sigurliði Íslands í 4x100 metra boðhlaupi. En hvert stefnir Tiana í framtíðinni? „Mig langar að ná eins langt í íþróttinni og ég get og halda áfram að bæta mig,“ sagði Tiana að lokum.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Tveir nítján ára handteknir fyrir nauðgun Enski boltinn „Ég hefði bara átt að taka leikhlé“ Handbolti Segir sína menn ekki verðskulda Evrópusæti Enski boltinn Fyllir Slot upp í tómarúmið sem Klopp skilur eftir sig? Enski boltinn Slapp við rautt þrátt fyrir fólskubrot: „Einhver þarf að útskýra þetta fyrir mér“ Enski boltinn Segir sitt hlutverk að fá leikmenn til að trúa á verkefnið Enski boltinn „Maður hugsar ekki þannig sem þjálfari“ Körfubolti Ótrúlegur lækningamáttur í dalnum vekur furðu Íslenski boltinn „Ég er bara mjög spenntur, þeir eru klárlega ‘the team to beat’“ Körfubolti Dagskráin í dag: Oddaleikur í Ólafssal, Hákon Arnar og margt fleira Sport Fleiri fréttir Slapp við rautt þrátt fyrir fólskubrot: „Einhver þarf að útskýra þetta fyrir mér“ Tveir nítján ára handteknir fyrir nauðgun Fyllir Slot upp í tómarúmið sem Klopp skilur eftir sig? Dagskráin í dag: Oddaleikur í Ólafssal, Hákon Arnar og margt fleira Segir sína menn ekki verðskulda Evrópusæti „Ég hefði bara átt að taka leikhlé“ Segir sitt hlutverk að fá leikmenn til að trúa á verkefnið Fjölnir fyrsta liðið í sextán liða úrslit „Ég er bara mjög spenntur, þeir eru klárlega ‘the team to beat’“ Juventus í bikarúrslit þrátt fyrir tap „Maður hugsar ekki þannig sem þjálfari“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Fram - Haukar 23-27 | Gestirnir sterkari undir lokin Uppgjör og viðtöl: Álftanes - Keflavík 85-114 | Sjóðheit Keflavíkursókn blés nýliðana burt Skytturnar tylltu sér á toppinn með stæl Ekroth og þrír aðrir í banni í næstu umferð Bestu deildarinnar Íslandsmeistararnir byrja undanúrslitaeinvígið á sigri Teitur Örn öflugur og Flensburg í góðri stöðu Fjórða vika Rocket League deildarinnar í fullum gangi í kvöld Glugginn að lokast – Íslandsmeistari í KFA og Málfríður heim Liverpool aftur á leiðinni til Adidas Skorar tíðast allra en missir enn af leikjum Liverpool Gary Martin til Ólafsvíkur Segir viðbrögð fjölmiðla til skammar Ísland hefði mátt taka 26 leikmenn á EM Milan ætlar að reka Pioli „Ég fékk alla vega mat í dag“ Højlund kvartaði yfir því að Fernandes gæfi ekki nógu oft á sig Heldur tryggð við Aston Villa þrátt fyrir áhuga annarra liða Ótrúlegur lækningamáttur í dalnum vekur furðu Árs bann fyrir árás á eftirlitsmann og þjálfarinn fékk líka bann Sjá meira