Ísland hlýtur viðurkenningu fyrir brautryðjandastarf í þágu jafnréttis kynjanna Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 25. apríl 2018 22:15 Geir H. Haarde, sendiherra Íslands í Washington, tekur við viðurkenningunni fyrir Íslands hönd Mynd/Utanríkisráðuneytið Tilkynnt var í Washington í gærkvöldi að Ísland hlyti sérstaka viðurkenningu fyrir brautryðjandastarf í þágu jafnréttis kynjanna, undir yfirskriftinni Framtíð karlmennskunnar eða Future of Manhood. Það eru kanadísku samtökin Promundo sem veita viðurkenninguna en Geir H. Haarde sendiherra Íslands í Bandaríkjunum veitti viðurkenningunni mótttöku fyrir Íslands hönd. Samkvæmt tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu var í athöfninni einnig tilkynnt um viðurkenningar til átta einstaklinga, baráttufólks fyrir jafnrétti kynjanna. Þeirra á meðal eru forsætisráðherra Kanada, Justin Trudeau, kvikmyndagerðarkonan Jennifer Siebel Newsom, og framkvæmdastýra UN Women Phumzile Mlambo-Ngcuka.Margvíslegur hvati í íslenskri lagasetningu Stjórnarformaður Promundo, Gary Barker, sagði við verðlaunaafhendinguna að fyrir tilstuðlan #MeToo byltingarinnar og annarra aðgerða kvenna hefði hulu verið svipt af ofbeldi og áreiti karla í garð kvenna og þolinmæði væri þrotin á heimsvísu. Jafnrétti kynjanna væri á dagskrá stjórnvalda um víða veröld. Þrátt fyrir það er enn langt í land ef marka má spár Alþjóðahagþróunarstofnunarinnar um að búast megi við að hundrað ár taki að ná raunverulegu jafnrétti kynjanna. Sagði hann viðurkenningarnar veittar fyrir frumkvæði og framlag í þessa veru. „Í rökstuðningi fyrir viðurkenningu til Íslands kom fram að margvíslegur hvati sé í íslenskri lagasetningu, sem feli í sér skyldur og jafnframt tækifæri fyrir karla til þess að verða ábyrgir þátttakendur í lífi barna sinna. Hér er vísað til þess að allt að 90% feðra taka fæðingarorlof á Íslandi. Ennfremur kom fram að til fyrirmyndar sé hvernig Ísland hafi eflt umræðu meðal karla um jafnréttismál en hinar svokölluðu Rakarastofur hafa opnað augu karla og náð til karla á alþjóðavettvangi, veki þá til vitundar um mikilvægi jafnréttis og dulda fordóma í garð kvenna,“ segir í tilkynningu utanríkisráðuneytisins. Mest lesið Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent „Galið að fara svona með opinbert fé“ Innlent Hélt að pallurinn væri niðri og „þrumar á brúna og slítur hana niður“ Innlent Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Innlent Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Innlent Hafi líklega keyrt Yarisinn smá spotta og síðan skipt um bíl Innlent Fleiri fréttir Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Sjá meira
Tilkynnt var í Washington í gærkvöldi að Ísland hlyti sérstaka viðurkenningu fyrir brautryðjandastarf í þágu jafnréttis kynjanna, undir yfirskriftinni Framtíð karlmennskunnar eða Future of Manhood. Það eru kanadísku samtökin Promundo sem veita viðurkenninguna en Geir H. Haarde sendiherra Íslands í Bandaríkjunum veitti viðurkenningunni mótttöku fyrir Íslands hönd. Samkvæmt tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu var í athöfninni einnig tilkynnt um viðurkenningar til átta einstaklinga, baráttufólks fyrir jafnrétti kynjanna. Þeirra á meðal eru forsætisráðherra Kanada, Justin Trudeau, kvikmyndagerðarkonan Jennifer Siebel Newsom, og framkvæmdastýra UN Women Phumzile Mlambo-Ngcuka.Margvíslegur hvati í íslenskri lagasetningu Stjórnarformaður Promundo, Gary Barker, sagði við verðlaunaafhendinguna að fyrir tilstuðlan #MeToo byltingarinnar og annarra aðgerða kvenna hefði hulu verið svipt af ofbeldi og áreiti karla í garð kvenna og þolinmæði væri þrotin á heimsvísu. Jafnrétti kynjanna væri á dagskrá stjórnvalda um víða veröld. Þrátt fyrir það er enn langt í land ef marka má spár Alþjóðahagþróunarstofnunarinnar um að búast megi við að hundrað ár taki að ná raunverulegu jafnrétti kynjanna. Sagði hann viðurkenningarnar veittar fyrir frumkvæði og framlag í þessa veru. „Í rökstuðningi fyrir viðurkenningu til Íslands kom fram að margvíslegur hvati sé í íslenskri lagasetningu, sem feli í sér skyldur og jafnframt tækifæri fyrir karla til þess að verða ábyrgir þátttakendur í lífi barna sinna. Hér er vísað til þess að allt að 90% feðra taka fæðingarorlof á Íslandi. Ennfremur kom fram að til fyrirmyndar sé hvernig Ísland hafi eflt umræðu meðal karla um jafnréttismál en hinar svokölluðu Rakarastofur hafa opnað augu karla og náð til karla á alþjóðavettvangi, veki þá til vitundar um mikilvægi jafnréttis og dulda fordóma í garð kvenna,“ segir í tilkynningu utanríkisráðuneytisins.
Mest lesið Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent „Galið að fara svona með opinbert fé“ Innlent Hélt að pallurinn væri niðri og „þrumar á brúna og slítur hana niður“ Innlent Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Innlent Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Innlent Hafi líklega keyrt Yarisinn smá spotta og síðan skipt um bíl Innlent Fleiri fréttir Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Sjá meira