Vilja Hildi Björnsdóttur við hlið Eyþórs Birgir Olgeirsson og Jakob Bjarnar skrifa 20. febrúar 2018 11:25 Hildur Björnsdóttir lögfræðingur í forgrunni, Eyþór Arnalds ásamt Áslaugu Maríu Friðriksdóttur og Kjartani Magnússyni sem fylgdu Eyþóri fast á hæla í kosningu um fyrsta sæti listans. Uppstillingarnefnd leggur til að Hildur Björnsdóttir lögfræðingur taki annað sætið á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi borgarstjórnakosningar. Þetta herma heimildir Vísis. Eyþór Arnalds mun leiða listann eftir að hafa unnið leiðtogaprófkjör Sjálfstæðisflokksins í janúar síðastliðnum. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, þau Áslaug Friðriksdóttir og Kjartan Magnússon, höfnuðu í sætunum fyrir neðan Eyþór í prófkjörinu en þeim mun ekki vera boðið sæti á lista samkvæmt heimildum Vísis. „Við afgreiddum þetta frá okkur en nú tekur við að hringja í fólk og kanna hvort það tekur sæti,“ sagði Sveinn H. Skúlason formaður nefndarinnar í Fréttablaðinu í dag. „Þegar búið er að tala við fólk verður listinn lagður fyrir fulltrúaráðið á fimmtudag.“ Samkvæmt heimildum Vísis eru bundnar miklar vonir við Hildi sem framtíðarleiðtoga innan flokksins. Hún þykir afar frambærileg en óvíst er þó að hún muni tala eindregið á þeim nótum sem Eyþór hefur lagt upp s.s. í flugvallarmálinu og því sem snýr að borgarlínunni. Hildur tók virkan þátt í háskólapólitík með Vöku og var formaður Stúdentaráðs árið 2009. Hún var til umfjöllunar í þáttum Sindra Sindrasonar á uppleið í febrúar fyrir þremur árum. Sýnishorn úr þættinum má sjá hér að neðan.Þá hefur hún skrifað bakþanka í Fréttablaðið en Kristín Þorsteinsdóttir, ritstjóri Fréttablaðsins, er tengdamóðir hennar.Egill Þór og Valgerður nefnd Eftir því sem Vísir kemst næst er nú verið að bera listann undir þá aðila sem uppstillingarnefnd vill sjá á lista. Önnur nöfn sem Vísir hefur heyrt nefnd í þessu samhengi eru Egill Þór Jónsson, formaður hverfafélags flokksins í Breiðholti, og Valgerður Sigurðardóttir, fyrrverandi forseti bæjarstjórnar í Hafnarfirði. Að því er stefnt að af tíu efstu verði sex konur á listanum. Í samtali við Sjálfstæðismenn í morgun er rætt um hreinsanir, að gamli borgarstjórnarflokkurinn verði hvergi nærri. Þá er jafnframt nefnt að rekja megi þessar vendingar til undirliggjandi átaka í flokknum milli tveggja arma sem kenndir eru annars vegar við Guðlaug Þór Þórðarson utanríkisráðherra og hins vegar formann flokksins, Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra.Eyþór Arnalds er borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins.Vísir/EyþórYfirburður Eyþórs í prófkjöri Eyþór fékk 60 prósent atkvæða í prófkjörinu, eða 2.320 talsins, en næst á eftir honum var Áslaug María Friðriksdóttir með 788 greiddra atkvæða. Kjartan Magnússon fékk 460 atkvæði, Vilhjálmur Bjarnason fékk 193 atkvæði og Viðar Guðjohnsen fékk 65 atkvæði. Sveitarstjórnarkosningar fara fram 26. maí næstkomandi en ljóst er að ásýnd Sjálfstæðisflokksins mun verða talsvert breytt í borginni. Halldór Halldórsson, oddviti flokksins í borgarstjórn, gaf ekki kost á sér í prófkjörinu og ljóst er að Áslaug og Kjartan munu ekki eiga afturkvæmt í borgarstjórn að loknum kosningum. Uppfært klukkan 11:52. Sveitarstjórnarkosningar Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Erlent Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Innlent „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Innlent Fleiri fréttir Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Sjá meira
Uppstillingarnefnd leggur til að Hildur Björnsdóttir lögfræðingur taki annað sætið á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi borgarstjórnakosningar. Þetta herma heimildir Vísis. Eyþór Arnalds mun leiða listann eftir að hafa unnið leiðtogaprófkjör Sjálfstæðisflokksins í janúar síðastliðnum. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, þau Áslaug Friðriksdóttir og Kjartan Magnússon, höfnuðu í sætunum fyrir neðan Eyþór í prófkjörinu en þeim mun ekki vera boðið sæti á lista samkvæmt heimildum Vísis. „Við afgreiddum þetta frá okkur en nú tekur við að hringja í fólk og kanna hvort það tekur sæti,“ sagði Sveinn H. Skúlason formaður nefndarinnar í Fréttablaðinu í dag. „Þegar búið er að tala við fólk verður listinn lagður fyrir fulltrúaráðið á fimmtudag.“ Samkvæmt heimildum Vísis eru bundnar miklar vonir við Hildi sem framtíðarleiðtoga innan flokksins. Hún þykir afar frambærileg en óvíst er þó að hún muni tala eindregið á þeim nótum sem Eyþór hefur lagt upp s.s. í flugvallarmálinu og því sem snýr að borgarlínunni. Hildur tók virkan þátt í háskólapólitík með Vöku og var formaður Stúdentaráðs árið 2009. Hún var til umfjöllunar í þáttum Sindra Sindrasonar á uppleið í febrúar fyrir þremur árum. Sýnishorn úr þættinum má sjá hér að neðan.Þá hefur hún skrifað bakþanka í Fréttablaðið en Kristín Þorsteinsdóttir, ritstjóri Fréttablaðsins, er tengdamóðir hennar.Egill Þór og Valgerður nefnd Eftir því sem Vísir kemst næst er nú verið að bera listann undir þá aðila sem uppstillingarnefnd vill sjá á lista. Önnur nöfn sem Vísir hefur heyrt nefnd í þessu samhengi eru Egill Þór Jónsson, formaður hverfafélags flokksins í Breiðholti, og Valgerður Sigurðardóttir, fyrrverandi forseti bæjarstjórnar í Hafnarfirði. Að því er stefnt að af tíu efstu verði sex konur á listanum. Í samtali við Sjálfstæðismenn í morgun er rætt um hreinsanir, að gamli borgarstjórnarflokkurinn verði hvergi nærri. Þá er jafnframt nefnt að rekja megi þessar vendingar til undirliggjandi átaka í flokknum milli tveggja arma sem kenndir eru annars vegar við Guðlaug Þór Þórðarson utanríkisráðherra og hins vegar formann flokksins, Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra.Eyþór Arnalds er borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins.Vísir/EyþórYfirburður Eyþórs í prófkjöri Eyþór fékk 60 prósent atkvæða í prófkjörinu, eða 2.320 talsins, en næst á eftir honum var Áslaug María Friðriksdóttir með 788 greiddra atkvæða. Kjartan Magnússon fékk 460 atkvæði, Vilhjálmur Bjarnason fékk 193 atkvæði og Viðar Guðjohnsen fékk 65 atkvæði. Sveitarstjórnarkosningar fara fram 26. maí næstkomandi en ljóst er að ásýnd Sjálfstæðisflokksins mun verða talsvert breytt í borginni. Halldór Halldórsson, oddviti flokksins í borgarstjórn, gaf ekki kost á sér í prófkjörinu og ljóst er að Áslaug og Kjartan munu ekki eiga afturkvæmt í borgarstjórn að loknum kosningum. Uppfært klukkan 11:52.
Sveitarstjórnarkosningar Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Erlent Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Innlent „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Innlent Fleiri fréttir Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Sjá meira