Gönuhlaup Bjartrar framtíðar Ole Anton Bieltvedt skrifar 20. september 2017 07:00 Ríkisstjórnin er búin að sitja í 8 mánuði, og má draga frá þessum tíma þinghlé og sumarleyfi. Var ríkisstjórnin því enn með stefnu sína og framkvæmdaáætlun á undirbúningsstigi. Með riftun Bjartrar framtíðar á stjórnarsamkomulaginu var þessi undirbúningur að litlu gerður; tapaður tími og vinna: Það eru 188 mál á þingmálalista ríkisstjórnarinnar , sem væntanlega munu nú lenda í biðstöðu eða detta upp fyrir. Starfsstjórn tekur við. Þó að kosið verði 28. október, veit enginn, hvenær ný starfhæf ríkisstjórn verður mynduð. Verkefni starfsstjórnar er rétt, að halda málum gangandi. Nánast láta reka á reiðanum. Í raun er því verið að spilla heilu ári í jákvæðri viðleitni og uppbyggilegu starfi ríkisstjórnar og alþingismanna. Má reikna það til gífurlegra fjármuna, tuga milljarða króna, eða meira, sem þá tapast. Svipaðar fjárhæðir gufuðu upp á eignamörkuðum sl. föstudag. Töluðu sérfræðingar um, að langt væri síðan að annar eins titringur hefði farið um skuldabréfa- og hlutabréfamarkaðinn. „Þetta var eins og blóðbað,“ varð verðbréfamiðlara að orði. Kann þetta þó bara að vera byrjunin. Þessi stjórnarslit kunna líka að veikja krónuna, umfram þá nauðsynlegu leiðréttingu, sem komin var af stað, sem aftur kynni að setja af stað nýja verðbólguskriðu – hærra verðlag og svo hærri vexti – gamlan og velþekktan vítahring krónunnar, en hluti af núverandi festu krónunnar felst í aðhaldssamri fjármálastefnu ásamt hófsamlegri útgáfu ríkisskuldabréfa og – að mestu – jákvæðri stefnu þessarar ríkisstjórnar gagnvart mörkuðum og atvinnulífi. Stjórnarslit Bjartrar framtíðar eru því stórmál og kunna að leiða til alvarlegs bakslags í efnahagsmálum landsmanna. Tilefni Bjartrar framtíðar til stjórnarslitanna var, að forsætisráðherra og/eða dómsmálaráðherra hefðu leynt því, að faðir forsætisráðherra hafði skrifað meðmælabréf fyrir brotamann, sem þó hafði afplánað refsingu sína, til að gera þessum manni kleift, að öðlast „uppreist æru“ og komast aftur inn í íslenskt samfélag. Lítum fyrst á þessa hlið málsins. Það má lengi deila um, hvað sé hæfileg refsing við hinum ýmsu brotum, og virðast refsingar hér vægar, miðað við það sem gerist annars staðar, en refsilöggjöfin byggir á mati Alþingis, sem leitast við að finna „rétta refsingu“ fyrir brotamenn, þeim sjálfum til vítis og varnaðar og öðrum til viðvörunar. Í þessu tiltekna máli var brotið barnaníð, með verstu brotum, og sársauki fórnarlambs og aðstandenda gífurlegur, en, að íslenskum lögum, var refsing líka þung. Skv. grundvallarskilgreiningu laga og siðfræði er brotamaður búinn að gjalda fyrir brot sitt með afplánun dóms. Gerir löggjafinn ráð fyrir, að sá, sem hefur tekið út refsingu sína og hagað lífi sínu rétt og vel eftir það, geti fengið uppreist æru til að komast aftur inn í samfélagið og hefja nýtt líf. Mitt mat er því, að faðir forsætisráðherra hafi ekki gert mistök með meðmælabréfi sínu, hafi hann þekkt brotamann að góðu einu í öðrum efnum, heldur hafi hann sýnt mannlegan skilning og mannúð með umsögn sinni. Annað mál er auðvitað, að forsætisráðherra ber enga ábyrgð á gjörðum föður síns, og þarf hann hvorki að standa Guði né mönnum reikningsskil á þeim. Varðandi yfirhylmingu eða meint trúnaðarbrot, sem virðist vera aðalástæða stjórnarslitanna, verður ekki séð, að slíku sé fyrir að fara. Auk ofangreinds, eru þessi dóms- og refsimál einka- og trúnaðarmál. Ber stjórnvöldum að fara með þau skv. því. Ekki verður heldur séð, að forsætisráðherra beri sérstaklega að tíunda gjörðir ættmenna sinna gagnvart samráðherrum, frekar en að þeir upplýsi um sín fjölskyldumál innan ríkisstjórnar. Formaður Bjartrar framtíðar virðist vænn maður, velviljaður og yfirvegaður. Verður gönuhlaup hans og meðreiðarsveina og -meyja hans í þessu stjórnarslitamáli því ekki skýrt nema með augnabliks hugaræsingi og skammhlaupi í dómgreind. Það virðist sem sagt vera, að engin þúfa geti líka velt stóru hlassi. Höfundur er alþjóðlegur kaupsýslumaður. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Ole Anton Bieltvedt Mest lesið Ríkisreknar ofsóknir Sigurður Einarsson Skoðun Hver skipaði bankaráði Landsbankans að kaupa TM? Ásthildur Lóa Þórsdóttir Skoðun Bréf til þjóðarinnar Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir Skoðun Er þetta eðlilegt? Guðrún Árnadóttir,Guðrún Tara Sveinsdóttir,Hekla Kollmar,Þorgerður Jörundsdóttir Skoðun Saklausir menn í fangelsi Tinna Brynjólfsdóttir Skoðun Vikan með Gísla Árný Björg Blandon Skoðun Markvissar aðgerðir munu skila árangri á húsnæðismarkaði Ágúst Bjarni Garðarsson Skoðun Páskarnir - íhugunarhvatning Árni Stefán Árnason Skoðun Tónlist í gleði og sorg Sigurvin Lárus Jónsson Skoðun Foreldrar með börn í vímuefnaneyslu og úrræði Dagbjört Ósk Steindórsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Foreldrar með börn í vímuefnaneyslu og úrræði Dagbjört Ósk Steindórsdóttir skrifar Skoðun Páskarnir - íhugunarhvatning Árni Stefán Árnason skrifar Skoðun Aukinn kraftur með hækkandi sól Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Tilbrigðin um enda lífsins Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Tónlist í gleði og sorg Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Skoðun Eftirliti með snyrtistofum ábótavant Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Markvissar aðgerðir munu skila árangri á húsnæðismarkaði Ágúst Bjarni Garðarsson skrifar Skoðun Bréf til þjóðarinnar Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Einokunarmjólk? Hilmar Vilberg Gylfason skrifar Skoðun Má þjóðin ráða? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Formaður geðlækna illa áttaður? Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Hver skipaði bankaráði Landsbankans að kaupa TM? Ásthildur Lóa Þórsdóttir skrifar Skoðun Að vera eða vera ekki í samkeppni við sjálfa sig Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Engin námslán fyrir fátækt fólk Gísli Laufeyjarson Höskuldsson skrifar Skoðun Er þetta eðlilegt? Guðrún Árnadóttir,Guðrún Tara Sveinsdóttir,Hekla Kollmar,Þorgerður Jörundsdóttir skrifar Skoðun Stjórnmálin koma okkur öllum við Arnar Freyr Sigurðsson skrifar Skoðun Um tímabær áform ráðherra og ótímabært frumhlaup Viðskiptaráðs Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Fríar máltíðir grunnskólabarna - merkur samfélagslegur áfangi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Heilbrigðisráðuneytið er með forystu Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun, lækning, hroki og hleypidómar Guðbjörg Sveinsdóttir skrifar Skoðun Fyrirgefðu mér mín kæra Harpa Sævar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Vikan með Gísla Árný Björg Blandon skrifar Skoðun Furðulegar verðlækkanir á mörkuðum Baldur Thorlacius skrifar Skoðun Varanlegt vopnahlé og sjálfstæð Palestína Kristrún Frostadóttir skrifar Skoðun Með of mikil völd Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað ef það gýs nær höfuðborgarsvæðinu? Ingvi Gunnarsson,Sigrún Tómsdóttir,Hrefna Hallgrímsdóttir,Daði Hafþórsson skrifar Skoðun Er sniðugt að vera með tilgreinda séreign? Guðný Helga Lárusdóttir skrifar Skoðun Ekki þykjast ekki vita neitt Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Athugasemdir við eignaumsýslu Landsbanka Íslands Þorsteinn Sæmundsson skrifar Skoðun Framsókn stendur með bændum og neytendum Hópur þingmanna Framsóknar skrifar Sjá meira
Ríkisstjórnin er búin að sitja í 8 mánuði, og má draga frá þessum tíma þinghlé og sumarleyfi. Var ríkisstjórnin því enn með stefnu sína og framkvæmdaáætlun á undirbúningsstigi. Með riftun Bjartrar framtíðar á stjórnarsamkomulaginu var þessi undirbúningur að litlu gerður; tapaður tími og vinna: Það eru 188 mál á þingmálalista ríkisstjórnarinnar , sem væntanlega munu nú lenda í biðstöðu eða detta upp fyrir. Starfsstjórn tekur við. Þó að kosið verði 28. október, veit enginn, hvenær ný starfhæf ríkisstjórn verður mynduð. Verkefni starfsstjórnar er rétt, að halda málum gangandi. Nánast láta reka á reiðanum. Í raun er því verið að spilla heilu ári í jákvæðri viðleitni og uppbyggilegu starfi ríkisstjórnar og alþingismanna. Má reikna það til gífurlegra fjármuna, tuga milljarða króna, eða meira, sem þá tapast. Svipaðar fjárhæðir gufuðu upp á eignamörkuðum sl. föstudag. Töluðu sérfræðingar um, að langt væri síðan að annar eins titringur hefði farið um skuldabréfa- og hlutabréfamarkaðinn. „Þetta var eins og blóðbað,“ varð verðbréfamiðlara að orði. Kann þetta þó bara að vera byrjunin. Þessi stjórnarslit kunna líka að veikja krónuna, umfram þá nauðsynlegu leiðréttingu, sem komin var af stað, sem aftur kynni að setja af stað nýja verðbólguskriðu – hærra verðlag og svo hærri vexti – gamlan og velþekktan vítahring krónunnar, en hluti af núverandi festu krónunnar felst í aðhaldssamri fjármálastefnu ásamt hófsamlegri útgáfu ríkisskuldabréfa og – að mestu – jákvæðri stefnu þessarar ríkisstjórnar gagnvart mörkuðum og atvinnulífi. Stjórnarslit Bjartrar framtíðar eru því stórmál og kunna að leiða til alvarlegs bakslags í efnahagsmálum landsmanna. Tilefni Bjartrar framtíðar til stjórnarslitanna var, að forsætisráðherra og/eða dómsmálaráðherra hefðu leynt því, að faðir forsætisráðherra hafði skrifað meðmælabréf fyrir brotamann, sem þó hafði afplánað refsingu sína, til að gera þessum manni kleift, að öðlast „uppreist æru“ og komast aftur inn í íslenskt samfélag. Lítum fyrst á þessa hlið málsins. Það má lengi deila um, hvað sé hæfileg refsing við hinum ýmsu brotum, og virðast refsingar hér vægar, miðað við það sem gerist annars staðar, en refsilöggjöfin byggir á mati Alþingis, sem leitast við að finna „rétta refsingu“ fyrir brotamenn, þeim sjálfum til vítis og varnaðar og öðrum til viðvörunar. Í þessu tiltekna máli var brotið barnaníð, með verstu brotum, og sársauki fórnarlambs og aðstandenda gífurlegur, en, að íslenskum lögum, var refsing líka þung. Skv. grundvallarskilgreiningu laga og siðfræði er brotamaður búinn að gjalda fyrir brot sitt með afplánun dóms. Gerir löggjafinn ráð fyrir, að sá, sem hefur tekið út refsingu sína og hagað lífi sínu rétt og vel eftir það, geti fengið uppreist æru til að komast aftur inn í samfélagið og hefja nýtt líf. Mitt mat er því, að faðir forsætisráðherra hafi ekki gert mistök með meðmælabréfi sínu, hafi hann þekkt brotamann að góðu einu í öðrum efnum, heldur hafi hann sýnt mannlegan skilning og mannúð með umsögn sinni. Annað mál er auðvitað, að forsætisráðherra ber enga ábyrgð á gjörðum föður síns, og þarf hann hvorki að standa Guði né mönnum reikningsskil á þeim. Varðandi yfirhylmingu eða meint trúnaðarbrot, sem virðist vera aðalástæða stjórnarslitanna, verður ekki séð, að slíku sé fyrir að fara. Auk ofangreinds, eru þessi dóms- og refsimál einka- og trúnaðarmál. Ber stjórnvöldum að fara með þau skv. því. Ekki verður heldur séð, að forsætisráðherra beri sérstaklega að tíunda gjörðir ættmenna sinna gagnvart samráðherrum, frekar en að þeir upplýsi um sín fjölskyldumál innan ríkisstjórnar. Formaður Bjartrar framtíðar virðist vænn maður, velviljaður og yfirvegaður. Verður gönuhlaup hans og meðreiðarsveina og -meyja hans í þessu stjórnarslitamáli því ekki skýrt nema með augnabliks hugaræsingi og skammhlaupi í dómgreind. Það virðist sem sagt vera, að engin þúfa geti líka velt stóru hlassi. Höfundur er alþjóðlegur kaupsýslumaður.
Er þetta eðlilegt? Guðrún Árnadóttir,Guðrún Tara Sveinsdóttir,Hekla Kollmar,Þorgerður Jörundsdóttir Skoðun
Skoðun Er þetta eðlilegt? Guðrún Árnadóttir,Guðrún Tara Sveinsdóttir,Hekla Kollmar,Þorgerður Jörundsdóttir skrifar
Skoðun Um tímabær áform ráðherra og ótímabært frumhlaup Viðskiptaráðs Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar
Skoðun Fríar máltíðir grunnskólabarna - merkur samfélagslegur áfangi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar
Skoðun Hvað ef það gýs nær höfuðborgarsvæðinu? Ingvi Gunnarsson,Sigrún Tómsdóttir,Hrefna Hallgrímsdóttir,Daði Hafþórsson skrifar
Er þetta eðlilegt? Guðrún Árnadóttir,Guðrún Tara Sveinsdóttir,Hekla Kollmar,Þorgerður Jörundsdóttir Skoðun