Körfubolti

Körfuboltakvöld: Valur gæti verið í Evrópukeppni

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Hallveig Jónsdóttir og stöllur hennar eru heitasta lið landsins um þessar mundir
Hallveig Jónsdóttir og stöllur hennar eru heitasta lið landsins um þessar mundir vísir/bára
Það var stórleikur í toppbaráttu Domino's deildar kvenna í Keflavík í 19. umferð þegar Valur sótti toppliðið heim.

„Ég er búinn að hrósa þessu Valsliði meira en góðu hófi gegnir eftir að Helena kom, þetta lið lítur út fyrir að geta farið í Evrópukeppni, þær eru það góðar,“ sagði Jón Halldór Eðvaldsson þegar strákarnir í Domino's Körfuboltakvöldi gerðu umferðina upp á föstudagskvöld.

Valur vann leikinn að lokum örugglega 75-94 og minnkaði forskotið í Keflavík á toppnum niður í tvö stig.

„Keflavík að sama skapi, mig langar að hrósa þeim. Það sem fólk kannski skilur ekki og sér ekki er að Keflavík missti besta leikmanninn sinn frá því í fyrra. Bryndís er reyndar komin til baka, en þær eru bara með einn erlendan leikmann á móti því að öll önnur lið eru með fleiri, og þær eru í efsta sæti áfram KR í deildinni,“ hélt Jón Halldór áfram.

„Þessi þriðji leikhluti í þessum leik var eitt það flottasta sem ég hef séð í deildinni í vetur,“ sagði Teitur Örlygsson. „Keflavík hefði unnið flest lið í deildinni með þeim leik.“

Helena Sverrisdóttir átti frábæran leik í liði Vals, eins og svo oft áður með 32 stig og 12 stoðsendingar.

Helena Sverrisdóttir átti stórgóðan leiks2 sport
„Maður getur ekkert talað í kringum þennan hlut, hún er ekki best heldur langbest í deildinni. Með virðingu fyrir öllum öðrum, þá ræður enginn við hana,“ sagði Jón Halldór.

„Hún er á næsta leveli fyrir ofan,“ bætti Hermann Hauksson við.

Hin unga og efnilega Birna Valgerður Benónýsdóttir var frábær í liði Keflavíkur með 23 stig.

„Hún getur þetta allt saman. Ef að hausinn er rétt skrúfaður á þá gerast góðir hlutir,“ sagði Jón Halldór.

„Undanfarin ár þegar við höfum verið að ræða Domino's deild kvenna, stór hluti þeirra leikmanna sem eru að bera upp liðin og eru að skora helling, þetta eru bara börn.“

„Það er ótrúlega gaman að sjá þessa krakka blómstra svona,“ sagði Jón Halldór.

Alla umræðuna um 19. umferð kvennadeildarinnar má sjá í spilaranum hér að neðan.



Klippa: Körfuboltakvöld: Valsliðið nógu gott til að vera í Evrópukeppni



Fleiri fréttir

Sjá meira


×