Lærisveinar Lampards réðu ekki við Mávana

Smári Jökull Jónsson skrifar
Markaskorararnir Anthony Knockaert og Ashley Cole berjast um boltann í leiknum í dag.
Markaskorararnir Anthony Knockaert og Ashley Cole berjast um boltann í leiknum í dag. vísir/getty
Ævintýri Frank Lampards og félaga í Derby County í enska bikarnum er á enda eftir tap gegn úrvalsdeildarliði Brighton í dag. Lokatölur 2-1 og Brighton því komið áfram í næstu umferð.

Derby hafði meðal annars slegið Southampton út úr bikarnum og voru margir spenntir að sjá hvort þeir myndu ná að velgja Brighton undir uggum í dag.

Anthony Knockaert kom Brighton yfir á 33.mínútu og Jurgen Locadia tvöfaldaði forystuna í uppbótartíma fyrri hálfleiks þegar hann fylgdi á eftir stangarskoti Yves Bissouma.

Fyrrum félagi Lampards hjá Chelsea, Ashley Cole, minnkaði síðan muninn þegar níu mínútur voru eftir en leikmönnum Derby tókst ekki að jafna þrátt fyrir ágætis pressu undir lokin.

Brighton verður því í pottinum þegar dregið verður í 8-liða úrslit bikarsins.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira