Enski boltinn

Martial og Lingard missa báðir af leikjunum við Chelsea og Liverpool

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Anthony Martial og Jesse Lingard fagna engum mörkum á næstunni.
Anthony Martial og Jesse Lingard fagna engum mörkum á næstunni. Getty/Robbie Jay Barratt
Anthony Martial og Jesse Lingard verða báðir frá næstu vikurnar og verða því ekki með liði Manchester United liðinu í bikarleiknum á móti Chelsea á mánudagskvöldið.

Þeir missa líka báðir af deildarleiknum á móti Liverpool á Old Trafford um næstu helgi. Þetta eru ekki góðar fréttir fyrir Manchester United sem tapaði á þriðjudaginn sínum fyrsta leik undir stjórn Norðmannsins Ole Gunnar Solskjær.





Báðir tognuðu þeir í fyrri leiknum á móti Paris Saint Germain í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar og það mátti sjá mikinn mun á ógnun liðsins fram á völlinn eftir að þeir yfirgáfu völlinn.

Ole Gunnar Solskjær staðfesti fjarveru þeirra á blaðamannafundi í dag og talaði um að þeir verði frá í tvær til þrjár vikur.

Solskjær segir enga ástæðu til að örvænta þrátt fyrir fyrsta tapið og þessar fréttir.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×