Lífið

Hatari er viðvörun

Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar
Klemens Hannigan og Matthías Tryggvi Haraldsson.
Klemens Hannigan og Matthías Tryggvi Haraldsson. FBL/Sigtryggur Ari
Hatari komst áfram á fyrra undanúrslitakvöldi Söngvakeppninnar 2019 sem fór fram í Háskólabíói um síðustu helgi. Lag þeirra, Hatrið mun sigra, nýtur vinsælda en hljómsveitin hefur líka sætt gagnrýni. Hatari er þekkt fyrir beitta þjóðfélagsgagnrýni og BDSM-klæðin vekja athygli.

Tveir meðlimir Hatara, þeir Matthías Tryggvi Haraldsson og Klemens Hannigan samþykktu að hitta blaðamann yfir kokteil að kvöldlagi á Hótel Holti. Þriðji meðlimur sveitarinnar, Einar Stefánsson, var fjarri góðu gamni.

Hugðarefni strákanna í Hatara eru ekkert léttmeti. Dauðinn og umbylting á kapítalísku samfélagi manna. Neysluhyggja og tilgerð í tilverunni. Og dómsdagur. Falsaðar fréttatilkynningar, pólitískur undirtónn, yfirlýsingar sem ganga í berhögg hver við aðra og fleira í þeim dúr hefur fylgt sveitinni frá upphafi. Hversdagurinn er svikamylla, segja þeir oft og leitast við að afhjúpa hann í verkum sínum.

Hvað hafið þið á móti hversdeginum?

Matthías: Við hefðum ekkert út á hann að setja ef hann væri ekki linnulaus svikamylla.

Getur þú útskýrt þetta betur?

Já.

(Löng þögn.)

Matthías: Ímynd okkar gengur kaupum og sölum. Við búum við holskeflu fjölmiðla, upplýsinga og fölsunar. Kapítalið hefur gersigrað.

Er Hatari andkapítalískur?

Matthías: Já, við höfum alltaf verið það.

Klemens: Í raun getur maður samt ekki verið andkapítalískur þegar maður er fæddur inn í ástand þar sem allt í kringum mann byggir á kapítalisma.

Matthías: Þannig hyggjumst við knésetja kapítalið en selja ef til vill nokkra boli í leiðinni.

FBL/Sigtryggur Ari
Þannig að við erum gegnsósa?

Klemens: Já. Við erum það.

Þessar falsanir sem þið talið um, eruð þið að tala um samfélagsmiðla? Finnst ykkur við hafa týnst?

Matthías: Þetta er eins og Eurovision. Við hjúpum okkur glansmynd. Mörk ímyndar, persónuleika, borgarans og neytenda eru máð út. Í því felst svikamyllan ekki síst.

Eurovision, þið fóruð svolítið í kjölinn á söngvakeppninni?

Matthías: Þakka þér fyrir að gefa þér það.

Tja, þið skoðuðuð alla vega í hverju svokölluð Eurovision-hækkun felst?

Klemens: Í byrjun ferlisins vorum við týndir. Hvernig gætum við samið grípandi tónverk sem myndi ná til pöpulsins? Við fórum að rannsaka önnur tónskáld sem hafa tekið þátt í keppninni. Stöldruðum við á hugtaki sem var margnotað, Everest-tindur tónskáldsins er þessi Eurovision-upphækkun. Þegar við áttuðum okkur á því þá small allt saman. Þetta einstaka tónverk varð til. Og við skrifuðum okkur inn í tónlistarsöguna og erum á meðal gömlu meistaranna.

Þið sögðuð fólki sem horfði á ykkur í sjónvarpinu í undankeppninni að það myndi sjá eftir því til eilífðarnóns myndi það ekki kjósa ykkur áfram, standið þið við þessi orð?

Matthías: Já, við gerum það og gefum ekki afslátt af fyrri yfirlýsingum Hatara. Ég gaf eiginlega þrjá valkosti. Að horfa ekki á keppnina, kjósa Hatara eða sjá eftir því til eilífðarnóns.

En um glanshjúpinn, það eru allir á samfélagsmiðlum. Þið líka, þið eruð á Facebook, Instagram. Bara eiginlega öllum samfélagsmiðlum sem eru til, eruð þið ekki í mótsögn?

Matthías: Við lýstum því yfir að við myndum aldrei fara á samfélagsmiðla. En við lýstum því líka yfir að við myndum alltaf selja okkur réttu verði. Og við myndum svíkja öll loforð.

Klemens: Það er bara tímaspursmál hvenær við seljum okkur. Ef verðið er rétt, þá erum við til sölu.

FBL/Sigtryggur Ari
Matthías: Dómsdagur er ástand sem við erum nú þegar í. Eins og maður sem stekkur fram af kletti og hrapar. Þar er mannkynið, í dómsdagsástandi. Við sem einstaklingar erum í söluástandi. Augnablikið þar sem við seljum okkur sker ekki tímann í tvennt heldur hjúpar sig yfir hann. Við erum stöðugt að sökkva dýpra í þessa sölu- og neysluhyggju. Við erum fyrirtæki, sem rekur fyrirtæki sem rekur fjölmiðil og hljómsveit og stefnum á að framleiða gosdrykk. Sodadream verður gosdrykkurinn okkar. Og líka okkar helsti styrktaraðili.

Eins og ísraelska Sodastream?

Matthías: Sem framleiðir miklu óæðri vöru en Sodadream.

Margrét Friðriksdóttir lýsti því yfir á dögunum að hún myndi flytja úr landi ef þið færuð áfram í keppnina í Ísrael. Hvað fannst ykkur um það?

Matthías: Það var ánægjulegt þegar stjórn Svikamyllu ehf. tilkynnti okkur að Margrét Friðriksdóttir hefði verið ráðin fjölmiðlafulltrúi Hatara, enda hafa allar hennar yfirlýsingar verið okkur í hag og við þakklátir þeim. Hún stendur sig mjög vel.

Klemens: Hún verður höfð í heiðri í nýju kóloníunni okkar í Ísrael.

Matthías: Vilji Margrét flytja í BDSM-nýlendu Hatara, við botn Miðjarðarhafs, þá er hún velkomin. Það verður séð vel um hana.

Tölum aðeins um BDSM, hvers vegna veljið þið þennan lífsstíl?

Matthías: Það er sterkasta tjáning frjálslyndis sem fyrirfinnst. Það þrengir að en frelsar. BDSM er eins og kapítalið, heldur manni niðri en er í senn sterk einstaklingsbundin tjáning.

Eigið þið stóran aðdáendahóp, hverjir eru aðdáendur ykkar?

Matthías: Metalhausar, börn á öllum aldri, Svíar, fólk með græna hanakamba. Miðaldra karlar með blæti og húsmæður.

Klemens: Langömmur og langafar.

Matthías: Rússar á Instagram.

Klemens: Dóttir mín.

Matthías: Vinstri sinnaðir Ísraelsmenn.

Klemens: Þýskaland.

Matthías: Allir sem skilja kaldhæðni.

Þið hafið ekki komið til Ísraels. En fjölmiðlar þar eru mjög forvitnir um ykkur og þið voruð í stórri umfjöllun á næststærstu sjónvarpsstöð landsins nýlega. Ef þið verðið ekki kosnir áfram, ætlið þið samt að fara til ­Ísraels?

Matthías: Við myndum vilja bera það undir Margréti Friðriksdóttur. Hvort við lýsum því yfir opinberlega.

Hvað eruð þið að lesa, hver er ykkar andlega næring? Hvaðan spretta allar þessar hugmyndir?

Klemens: Noam Chomsky, Yahya Hassan, Naomi Klein, Mark Fisher, Peaches og Elísabet Jökulsdóttir.

Eruð þið trúaðir?

Klemens: Já, ég trúi á æðri mátt.

Matthías: Ég líka.

Fyrirlítið þið Eurovision?

Klemens: Nei.

Matthías: Eurovision er vettvangur og það er val fólksins hvað á hann er sett.

Klemens: Eurovision er fyrsti áfanginn í að knésetja kapítal­ismann.

Matthías: Og gott verkfæri sem slíkt.

Þið eruð verulega pólitískir?

Matthías: Já, og það er þversögn að segja annað um Eurovison og annan listrænan vettvang?

Hvað finnst ykkur fallegt? Hvað hreyfir við ykkur?

Klemens: Dóttir mín.

Hvað er hún gömul?

Klemens: Hún er nítján mánaða gömul.

Matthías: Það fallegasta í þessum heimi eru stór og rúmgóð bílastæði, grípandi auglýsingaherferðir á orkudrykkjum og hljóðið í útvarpinu þegar það segir manni hvað maður er að hlusta á: FM 95,7. Þetta er fuglasöngur, árstíðirnar og lífið sjálft.

Þið eruð svolítið ólíkir? Er einhver togstreita í bandinu?

(Löng þögn.)

Klemens: Við erum sama manneskjan í grunninn.

Matthías: Á meðal hugsandi fólks er alltaf togstreita. Við erum fædd í mótsögn við okkur sjálf.

Að lokum, viljið þið segja eitthvað við lesendur sem eru að lesa þetta viðtal við ykkur?

Klemens: Hatari er viðvörun. Þið ráðið hvort þið hlustið.

Matthías: Ef forsætisráðherra Ísraels, Benjamin Netanyahu, er að lesa þetta viðtal: Þá bíðum við enn þá eftir svari. Hann má skrifa okkur á hatari@hatari.is eða svikamyllaehf@svikamylla.is.

Áskorunin um að mæta okkur í glímu stendur enn.

Finnst ykkur best að útkljá málin þannig?

Klemens: Það er ekkert sannara en heiðarleg glímukeppni.

Matthías: Málin eru best útkljáð þannig. Okkur þóknast ekki ofbeldi.

Hver eru gildin ykkar?

Matthías: Drengskapur og gagnrýnin hugsun.

(Og kynþokki, tuldrar Klemens ofan í bringuna.)

Matthías: Við vonum að stjórnmálamenn um alla Evrópu sýni drengskap í hvívetna. Hlusti á gagnrýni og virði mat hlutlausra dómara á borð við Sameinuðu þjóðirnar.

Um Hatara:

Hatari hefur verið valin besta tónleikasveitin í tvö ár í röð í Reykjavik Grapevine.

Þeir hafa vakið mikla athygli erlendis fyrir lag sitt Hatrið sigrar. Mikið áhorf er á myndband þeirra á Youtube, þeir fá fjölmargar athugasemdir og eru umræddir á ótal bloggum um Eurovision. Þá rötuðu þeir í sjónvarpið nýverið á annarri stærstu sjónvarpsstöð Ísrael þar sem til umfjöllunar var áskorun þeirra til Benjamin Netanyahu um að mæta þeim í glímu þann 19.maí næstkomandi.

Rob Holley,Blaðamaður á breska blaðinu The Independant, hefur spáð Hatara sigri í aðalkeppninni í Ísrael.

Í viðtali við Stundina fyrir nokkru sögðust strákarnir í Hatara gagnrýnir á ísraelsk stjórnvöld og þau mannréttindabrot sem eru framin í landinu. Þeir sögðu frálett að Ísland tæki þátt í Eurovision þegar keppnin er haldin í ríki sem traðki á mannréttindum. Úr því sem komið er verði þó Íslendingar að nota dagskrárvald sitt. „Við teljum okkur hafa annars konar vald, vald hirðfíflsins,“ sögðu þeir.

„Hatari speglar samfélagið í dökkum skugga og viðvörunarorð þeirra eru skýr: bætið ykkur áður en það er oft seint og minningum samfélagsins um siðferðislega rotnun þess verður aðeins hóflega minnst.“ Segir í tónlistarbloggi á The Guardian um tónlist þeirra á Airwaves tónlistarhátíðinni.

Hatari heldur úti einhvers konar falsfréttaáróðurssíðu, Icelandmusicnews.com. Þar eru eingöngu að finna fréttir um sveitina.

Hatari á félagið Svikamylla ehf. Um tilgang félagsins segir: Niðurrifsstarfsemi á síðkapítalismanum, að eiga og reka fasteignir, miðla íslenskum og erlendum dómsdagskveðskap, margmiðlun, útgáfa, stunda innflutning og önnur verslunarviðskipti svo og lánastarfsemi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×