Innlent

Fjöldi fólks leitað til Neytendasamtakanna vegna bílaleigubíla

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Frá útibúi Procar í Reykjanesbæ.
Frá útibúi Procar í Reykjanesbæ. Procar.is
Fjöldi manns sem keypt hefur bíla af bílaleigum á undanförnum árum hefur leitað til Neytendasamtakanna síðustu daga. Formaður samtakanna segir fólk áhyggjufullt en að unnið sé að gerð lista sem mun auðvelda fólki að meta hvort átt hafi verið við kílómetramæla í bílum þeirra.

Atburðarásin hefur verið hröð síðan á þriðjudagkvöld, þegar Kveikur greindi frá því að bílaleigan Procar hafði átt við kílómetrafjölda þeirra bíla sem hún seldi á milli áranna 2011 og 2016.

Procar hefur verið vikið úr Samtökum ferðaþjónustunnar, fyrrum viðskiptavinir bílaleigunnar íhuga að leita réttar síns auk þess sem kaupendur hafa skilið bíla sem þeir keyptu af Procar fyrir utan skrifstofu fyrirtækisins.

Nú síðast í gærkvöldi greindi Morgunblaðið frá því að alþjóðlega bíla­leigu­vefsíðan Auto Europe hafi ákveðið að hætta viðskiptum við Procar. Vefsíðan er sögð hafa verið mik­il­væg­asti sam­starfsaðili Procar og veiga­meiri en nokk­ur ann­ar milliliður í því að skaffa bíla­leig­unni viðskipti er­lendra ferðamanna.

Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, segir fjölda félagsmanna hafa leitað aðstoðar hjá samtökunum síðustu daga. Ekki aðeins áhyggjufullir viðskiptavinir Procar heldur einnig fólk sem keypti bíl af öðrum bílaleigum.

„Það hafa margir félagsmenn leitað til okkar í vikunni varðandi þetta mál. Fólk er yfirleitt að spyrjast fyrir, kannað hvort þeirra bílar gætu mögulega hafa verið meðal þeirra sem átt hefur verið við og fólk er náttúrulega áhyggjufullt og er að kanna stöðu sína,“ segir Breki.

Neytendasamtökin hafi kallað eftir upplýsingum frá bílaumboðum og vinni nú að gerð gátlista sem ætlað er að aðstoða fólk við að meta hvort átt hafi verið við kílómetramæla í bílunum þeirra.

„Við höfum sent út fyrirspurnir til umboða um það hvernig og hvort er hægt að sjá hvort átt hafi verið við kílómetramælinn og munum taka það saman og birta á vefnum okkar snemma í næstu viku,“ segir Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna.


Tengdar fréttir

Askja skoðar stöðu sína gagnvart Procar

Samgöngustofa skoðar nú hvernig brugðist verði við beiðni Samtaka ferðaþjónustunnar um eftirlitsúttekt hjá öllum bílaleigum sem hafa starfsleyfi eftir að mál bílaleigunnar Procar kom upp.

Grunaði Procar aldrei og telur sig illa svikinn

Jóhann Lövdal, eigandi bílasölunnar Bílamarkaðarins, segir tíðindin af áralöngu svindli Procar þar sem stöðu á kílómetramæli bílaleigubíla var breytt, áfall fyrir stétt bílasala.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×