Innlent

Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2

Ritstjórn skrifar
Þriðjungur allra lána til stærstu útflutningsfyrirtækja í landinu koma frá erlendum bönkum. Þá kemur um helmingur af nýjum fasteignalánum frá lífeyrissjóðum. Framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja segir að ástæðan fyrir þessu sé ofsköttun íslensku bankanna. Þetta geti haft neikvæð áhrif á hagkerfið og valdið því að áhætta vaxi á ný. Við fjöllum nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30.

Tölur frá Evrópu benda til þess að umfang svika með kílómetramæla í bílum gæti verið meira en virðist vera. Skiptar skoðanir eru um árlega skoðun á bílaleigubílum líkt og FÍB hefur kallað eftir.

Við ræðum einnig við bróður Jóns Þrastar Jónssonar sem hefur verið týndur í Dyflinni í viku. Fjölskylda hans er komin út og leitar hans þar.

Þá mætti fjölmenni á baráttufund um friðun Víkurgarðs sem haldinn var í Iðnó í dag. Fundurinn samþykkti ályktun þar sem skorað er á ráðherra að friða garðinn.

Við lítum einnig á fimm mánaða kálfinn Draum sem er á nýrri einangrunarstöð fyrir Aberdeen Angus holdagripi en hann þykir þyngjast á einstökum hraða, eða um tvö kíló á dag.

Þetta og margt fleira á samtengdum rásum Bylgjunnar, Stöðvar 2 og Vísis klukkan 18:30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×