Viðskipti innlent

Skordýr fundust í poppmaís

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Poppmaísinn frá Coop.
Poppmaísinn frá Coop.
Matvælastofnun vekur athygli neytenda á því að skordýr hafa fundist í poppmaís frá Coop. Um er að ræða 500 gramma einingu sem merkt er með best fyrir dagsetningunni 22.10.2019. Samkaup innkallar vöruna úr verslunum og frá neytendum.

Innköllunin á eingöngu við eftirfarandi best fyrir dagsetningu:

  • Vöruheiti: Coop Popcorn
  • Þyngd: 500g
  • Best fyrir dagsetning: 22.10.2019
  • Framleiðsluland: Danmörk
  • Dreifing: Verslanir Kjörbúða, Krambúða, Nettó, Strax, Háskólabúð – HÍ og Seljakjör
Viðskiptavinir eru hvattir til að skila vörunni í viðkomandi verslun gegn endurgreiðslu. Hægt er að skila vörunni í verslunum Nettó, Krambúðarinnar og Kjörbúðarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×