Sport

Goðsagnir NFL-deildarinnar í frábærri auglýsingu

Lynch að koma stuðinu í gang.
Lynch að koma stuðinu í gang. vísir/getty
Af mörgum góðum auglýsingum í gær þá höfðu NFL-aðdáendur mest gaman af auglýsingu frá deildinni sjálfri þar sem margar af helstu goðsögnum deildarinnar komu við sögu.

Auglýsingin er gerð í tilefni af 100 ára afmæli deildarinnar.

Hún byrjar á því að yfirmaður deildarinnar, Roger Goodell, er að halda ræðu er hlauparinn Marshawn Lynch er með smá fíflalæti. Í kjölfarið verður fjandinn laus hjá í teitinu.

Þarna má sjá Joe Montana, Peyton Manning, Tom Brady, Barry Sanders og miklu fleiri goðsagnir. Sjón er sögu ríkari.





NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×