Tónlist

Íslenska acapella sveitin Barbari spreytir sig á Over the Rainbow

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ekki fyrsta acapella lagið frá Barbari.
Ekki fyrsta acapella lagið frá Barbari.
Kvartettinn Barbari hefur gefið frá sér nýtt myndband við acapella útgáfu af laginu Over the Rainbow sem flestir þekkja úr Galdrakarlinum í Oz.

Myndbandið er það metnaðarfyllsta sem strákarnir hafa gert hingað til en áður hafa þeir gert myndbönd við lög á borð við Africa með Toto og You’ve got a friend in me úr Toy Story.

Barbari er skipaður þeim Karli, Páli, Stefáni og Þórði en strákarnir kynntust í kór Menntaskólans í Reykjavík árið 2014 og stofnuðu kvartettinn í kjölfarið.

„Við tökum að okkur söng við alls konar tilefni, allt frá afmælisveislum til árshátíða, og syngjum í bland íslensk og erlend lög,” segir Stefán.

„Ásamt því að vera að frumsýna myndbandið erum við á fullu að æfa fyrir Valentínusartónleika þann 14. febrúar næstkomandi í Iðnó en þar verða með okkur stelpurnar úr Lyrika”.

Upplýsingar um tónleikana má finna hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×