Innlent

Ed Miliband: Horfum til Íslands vegna kynjajafnréttis og loftslagasmála

Sighvatur Jónsson skrifar
„Horft er til Íslands vegna kynjajafnréttis og loftslagasmála,“ segir Ed Miliband, þingmaður breska verkamannaflokksins. Miliband hrósar Jeremy Corbyn, núverandi leiðtoga flokksins, fyrir að rétta Theresu May, forsætisráðherra, hjálparhönd varðandi vandasama úrgöngu Breta úr Evrópusambandinu. Hann segir May þurfa að leggja sig betur fram.

Katrín Jakobsdóttir og Steingrímur J. Sigfússon blása á 20 ára afmælistertu Vinstri grænna.Vísir/Egill
Meðal gesta á málþingi Vinstri grænna í dag um stöðu vinstrisins og hnattrænar áskoranir var Ed Miliband, þingmaður breska verkamannaflokksins og fyrrverandi formaður flokksins.

Hann segir að formlegur systurflokkur á Íslandi sé jafnaðarmannaflokkur Samfylkingarinnar. Það sé þó alltaf gott að skiptast á skoðunum með fólki á vinstri væng stjórnmálanna.

„Það er gott að skiptast á skoðunum og líka að sjá hvað er að gerast á Íslandi. Við dáumst að mörgu sem Ísland hefur gert, til dæmis áherslu ykkar á jafnrétti kynjanna, opinberri afstöðu ykkar um loftslagsbreytingar og kolefnisjöfnun. Ég er hingað kominn til að læra ásamt því að miðla af eigin reynslu,“ segir Ed Miliband í samtali við fréttastofu.

Miliband segir ólíklegt að hægri og vinstir flokkar myndu starfa saman í ríkisstjórn í Bretlandi eins og Vinstri græn og Sjálfstæðisflokkurinn gera á Íslandi.

Ed Miliband, þingmaður breska Verkamannaflokksins.Vísir/Egill
Formaður verkamannaflokksins, Jeremy Corbyn, hefur verið gagnrýndur fyrir að leggja lítið fram til lausnar Brexit mála á breska þinginu. Miliband er ánægður með að Corbyn sé farinn að ræða lausnir við forsætisráðherrann, Theresu May.

„Hún vinnur samkvæmt því sem neðri málstofan samþykkti en þetta er samkomulag sem felur ekki í sér fyrirvarann um írsku landamærin. Hún leggur í raun ekki fram tillögu heldur segir hún að henni hugnist ekki tillagan um fyrirvarann. Hún þarf að sýna fram á að tillaga hennar sé á jákvæðum nótum.“

Ed Miliband telur að Jeremy Corbyn sé að opna leið fyrir Theresu May. „Ég vona að hún grípi það tækifæri. Í samtölum mínum skynja ég vissulega að fjölmargir íhaldsmenn á þingi telja hana ekki geta haldið áfram á sömu braut. Hún þarf að vera hugmyndarík. Vonandi að svo verði.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×