Viðskipti erlent

Facebook gerir út njósnaapp

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Appið brýtur gegn skilmálum Apple
Appið brýtur gegn skilmálum Apple Getty/Towfiqu
Facebook hefur frá 2016 greitt fólki frá 13 til 35 ára allt að 20 dali á mánuði fyrir að hala niður appi að nafni Facebook Research. Appið fylgist með öllu sem notandinn gerir í síma sínum og sendir til Facebook. Þannig er gögnum um netnotkun og keppinauta Facebook safnað í stórum stíl. Techcrunch greindi frá.

Samkvæmt öryggissérfræðingi sem miðillinn ræddi við getur Facebook safnað einkaskilaboðum, myndum, tölvupóstum, leitarorðum, vafrasögu og staðsetningu notanda með appinu. Upplýsingafulltrúi Apple sagði við Techcrunch að þetta væri skýrt brot gegn skilmálum Apple.

„Facebook hefur notað aðild sína að hönnunarverkefni okkar til þess að dreifa gagnasöfnunarforriti til neytenda. Þetta er skýrt brot gegn skilmálum samkomulags Facebook og Apple,“ sagði upplýsingafulltrúinn.

Facebook staðfesti í kjölfar birtingar fréttarinnar að útgáfu appsins fyrir iOS, stýrikerfi iPhone-síma Apple, yrði hætt. Henni verður þó haldið áfram fyrir Android. Facebook festi kaup á fyrirtækinu Onavo 2014. Það hafði þróað app að nafni Onavo Protect sem þjónaði sams konar tilgangi.

Þannig gat Facebook komist að því hvernig notendum líst á önnur öpp og gat meðal annars spáð fyrir um komandi vinsældir WhatsApp, sem Facebook keypti síðar sama ár. Apple bannaði það app í ágúst síðastliðnum






Fleiri fréttir

Sjá meira


×