Erlent

Átta friðar­gæslu­liðar SÞ látnir eftir árás í Malí

Atli Ísleifsson skrifar
Um 13 þúsund friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna eru nú í Malí.
Um 13 þúsund friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna eru nú í Malí. Getty
Átta hermenn í friðargæslusveitum Sameinuðu þjóðanna eru látnir eftir árás vígamanna í Malí í morgun. Frá þessu greinir AFP og hefur eftir ónafngreindum heimildarmönnum.

Árásin beindist að herstöð Sameinuðu þjóðanna í Aguelhok í norðausturhluta landsins.

Hermenninir eru allir frá nágrannaríkinu Tsjad og er ekki útilokað að fjöldi látinna komi til með að hækka.

Talsmaður stjórnarhers Malí segir að sex manns hafi fallið í árásinni og nítján særðust. Einhverjir árásarmannanna eiga einnig að hafa látið lífið í árásinni.

Um 13 þúsund friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna eru nú í Malí, en þeim var komið þar fyrir árið eftir að herskáir íslamistar náðu tökum á stórum landsvæðum í norðurhluta landsins. Frönskum hersveitum tókst að hrekja þá til baka 2013.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×