Handbolti

Topparnir í tölfræðinni á móti Frakklandi: Haukur sá yngsti sem skorar mark á HM 2019

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Haukur Þrastason varð í kvöld yngsti leikmaðurinn til að spila og skora á þessu HM í handbolta.
Haukur Þrastason varð í kvöld yngsti leikmaðurinn til að spila og skora á þessu HM í handbolta. Vísir/EPA
Íslenska karlalandsliðið í handbolta tapaði með níu mörkum á móti Frökkum, 22-31, í öðrum leik sínum í milliriðli á HM 2019 í Þýskalandi og Danmörku.

Frakkar skoruðu sex fyrstu mörkin í leiknum og íslenska liðið skoraði ekki sitt fyrsta mark fyrr en eftir rúmar tólf mínútur. Þrjú af sex fyrstu mörkum franska liðsins komu yfir allan völlinn og í stöðunni 6-0 var franski markvörðurinn Vincent Gérard búin að verja öll skot íslenska liðsins og var að auki markahæstur á vellinum með tvö mörk.

Þetta var allt of djúp hola fyrir ungt íslenskt lið sem var búið að missa tvo bestu menn liðsins í meiðsli eða þá Aron Pálmarsson og Arnór Þór Gunnarsson.

Íslensku strákarnir náðu muninum aftur niður í tvö mörk í byrjun seinni hálfleik en þá gáfu Frakkar aftur í og unnu að lokum mjög öruggan sigur.

Elvar Örn Jónsson tók við ábyrgðarhlutverkinu af Aroni Pálmarssyni að taka af skarið í sókninni og kom að níu íslensku mörkum.

Stærsta hluta leiksins voru mjög ungir leikmenn í aðalhlutverki hjá íslenska liðinu og Haukur Þrastarson skoraði tvö mörk í frumraun sinni á stórmóti. Hann var bæði yngsti leikmaðurinn til að spila og skora á þessu HM.

Ágúst Elí Björgvinsson varði 9 skot í fyrri hálfleiknum en íslensku markverðirnir vörðu aðeins tvö skot samtals allan seinni hálfleikinn. Frönsku markverðirnir vörðu átta fleiri skot í seinni hálfleiknum.

Vísir fylgist vel með tölfræði íslenska liðsins á mótinu og hefur nú tekið saman þá leikmenn sem sköruðu fram úr í tölunum í þessum sjöunda leik Íslands á mótinu.

Hér fyrir neðan má sjá toppa íslenska liðsins í tölfræðinni.

- Íslensku landsliðsmennirnir á móti Frakklandi á HM 2019 -

Hver skoraði mest

1. Elvar Örn Jónsson 5

2. Sigvaldi Guðjónsson 4

3. Teitur Örn Einarsson 3

4. Bjarki Már Elísson 2

4. Ýmir Örn Gíslason 2

4. Ólafur Guðmundsson 2

4. Arnar Freyr Arnarsson 2

4. Haukur Þrastarson 2

Hver varði flest skot:

1. Ágúst Elí Björgvinsson 10 (31%)

2. Björgvin Páll Gústavsson 1 (10%)

Hver spilaði mest í leiknum

1. Bjarki Már Elísson 60:00

1. Sigvaldi Guðjónsson 60:00

3. Elvar Örn Jónsson 49:49

4. Ágúst Elí Björgvinsson 39:05

5. Arnar Freyr Arnarsson 38:54

6. Ólafur Guðmundsson 34:37

7. Teitur Örn Einarsson 25:08

8. Ýmir Örn Gíslason 22:42

Hver skaut oftast á markið

1. Elvar Örn Jónsson 8

1. Teitur Örn Einarsson 8

3. Ólafur Guðmundsson 7

4. Sigvaldi Guðjónsson 6

5. Haukur Þrastarson 4

6. Bjarki Már Elísson 3

6. Ómar Ingi Magnússon 3

6. Arnar Freyr Arnarsson 3

Hver gaf flestar stoðsendingar

1. Elvar Örn Jónsson 4

2. Ólafur Guðmundsson 2

2. Teitur Örn Einarsson 2

4. Björgvin Páll Gústavsson 1

4. Ómar Ingi Magnússon 1

4. Sigvaldi Guðjónsson 1

Hver átti þátt í flestum mörkum (Mörk + stoðsendingar)

1. Elvar Örn Jónsson    9 (5+4)

2. Sigvaldi Guðjónsson    5 (4+1)

2. Teitur Örn Einarsson    5 (3+2)

4. Ólafur Guðmundsson    4 (2+2)

5. Bjarki Már Elísson    2 (2+0)

5. Ýmir Örn Gíslason    2 (2+0)

5. Arnar Freyr Arnarsson 2 (2+0)

5. Haukur Þrastarson    2 (2+0)

Hver stoppaði oftast í vörninni (HB Statz)

1. Ólafur Gústafsson 7

2. Ólafur Guðmundsson 6

3. Elvar Örn Jónsson 5

4. Haukur Þrastarson 3

4. Arnar Freyr Arnarsson 3

6. Bjarki Már Elísson 2

Hver tapaði boltanum oftast

1. Elvar Örn Jónsson 4

2. Ólafur Guðmundsson 3

3. Haukur Þrastarson 2

Hver vann boltann oftast:

1. Bjarki Már Elísson 1

1. Ólafur Guðmundsson 1

1. Ólafur Gústafsson 1

1. Haukur Þrastarson 1

Hver fiskaði flest víti:

1. Elvar Örn Jónsson 1

Hver fiskaði flestar brottvísanir:

1. Elvar Örn Jónsson 2

2. Ómar Ingi Magnússon 1

2. Arnar Freyr Arnarsson 1

2. Haukur Þrastarson 1

Hæsta einkunn íslensku leikmannanna í sókn (HB Statz):

1. Elvar Örn Jónsson 7,9

2. Sigvaldi Guðjónsson 7,2

3. Teitur Örn Einarsson 6,3

4. Bjarki Már Elísson 6,1

5. Arnar Freyr Arnarsson 6,1

Hæsta einkunn íslensku leikmannanna í vörn (HB Statz):

1. Ólafur Guðmundsson 8,6

2. Ólafur Gústafsson 8,0

3. Elvar Örn Jónsson 7,1

4. Bjarki Már Elísson 6,9

5. Haukur Þrastarson 6,8

Franski markvörðurinn Vincent Gérard var kominn með tvö mörk áður en Ísland skoraði fyrsta markið sitt.Getty/Jörg Schüler
- Hvaðan komu flest mörk íslenska liðsins í leiknum -

9 með langskotum

6 af línu

4 úr hraðaupphlaupum (9 með seinni bylgju)

2 með gegnumbrotum

1 úr hægra horni

0 úr vítum

0 úr vinstra horni

- Plús & mínus kladdinn í leiknum -

Mörk með langskotum: Ísland +5 (9-4)

Mörk af línu: Ísland +3 (6-3)

Mörk úr hraðaupphlaupum: Ísland +1 (9-8)

Tapaðir boltar: Ísland +7 (12-5)

Fiskuð víti: Ísland +1 (1-0)

Varin skot markvarða: Frakkland +7 (18-11)

Varin víti markvarða: Frakkland +1 (1-0)

Misheppnuð skot: Ísland +3 (22-19)

Löglegar stöðvanir: Ísland +13 (30-17)

Refsimínútur: Frakkland +6 mín. (10-4)

- Góðu og slæmu kaflarnir í leiknum -

Fyrri hálfleikurinn: Frakkland +4 (15-11)

1. til 10. mínúta: Frakkland +4 (4-0)

11. til 20. mínúta: Frakkland +1 (6-5)

21. til 30. mínúta: Ísland +1 (6-5)

Seinni hálfleikurinn: Frakkland +5 (16-11)

31. til 40. mínúta: Frakkland +3 (6-3)

41. til 50. mínúta: Ísland +1 (4-3)

51. til 60. mínúta: Frakkland +3 (7-4)

Byrjun hálfleikja: Frakkland +7 (10-3)

Lok hálfleikja: Frakkland +2 (12-10)


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×