Tónlist

Íslenskir tónlistarmenn í útrás

Stefán Árni Pálsson skrifar
Það er ekki vitlaust að veðja á að Reykjavíkurdætur verði næsta stóra band frá Íslandi.
Það er ekki vitlaust að veðja á að Reykjavíkurdætur verði næsta stóra band frá Íslandi. Berglaug Petra Garðarsdóttir
Eurosonic tónlistarhátíðinni í Groningen í Hollandi, hefst í næstu viku, nánar tiltekið, 16. -10. janúar.

Um er að ræða tónlistarráðstefnu og hátíð þar sem helstu útvarpsstöðvar og tónlistarhátíðir Evrópu koma saman til að ráða ráðum sínum og sjá athyglisverða nýja tónlist frá hinum ýmsu evrópulöndum.

Árið 2015 fóru 19 tónlistarverkefni út fyrir Íslands hönd á hátíðina, auk pallborða og fyrirlestra um íslenska tónlist og tónlistargeirann, sem þykir nokkuð sérstakur á alþjóðamælikvarða.

Í ár verða veitt ný evrópsk tónlistarverðlaun inni á hátíðinni sem bera nafnið Music Moves Europe Talent Award eða MMETA, en verðlaunaafhendingin fer fram miðvikudagskvöldið 16. janúar við hátíðlega athöfn í Groningen.

Reykjavikurdætur eru á meðal vinningshafa í ár en þær koma einnig til með að spila tónleika í stóra tjaldinu á torginu í Groningen. Hérna má lesa plötudóm úr NME um nýju plötuna þeirra frá 14. des.

Fleiri íslensk atriði verða á hátíðinni í ár og má þar nefna: Briet, Hugar, Uné Misère,  Hildur,  Kælan Mikla og Hatari.

Rockpalast sjónvarpsþátturinn þýski tekur upp þrjú íslensk bönd og eru þau:

Uné Misére

Hatari

Hildur






Fleiri fréttir

Sjá meira


×