Menning

Níræð leirlistakona heldur sýningu í Reykjavík

Stefán Árni Pálsson skrifar
Leirlistakonan sjálf má sjá hér til hægri og til vinstri er sonardóttir hennar og ljósmyndarinn, Helga Laufey Ásgeirsdóttir.
Leirlistakonan sjálf má sjá hér til hægri og til vinstri er sonardóttir hennar og ljósmyndarinn, Helga Laufey Ásgeirsdóttir.
Sigríður Laufey Guðmundsdóttir sem varð níræð í vor hefur skapað leirlistaverk síðan hún útskrifaðist úr Myndlista og Handíðaskóla Íslands 1984 eftir að hafa lokið námi í bæði vefnaðardeild og keramíkdeild.

Sigríður hefur starfað sem leirlistakona í tæp 40 ár og eftir hana liggja hátt í þúsund leirlistavkerk. Hún sýnir nú verk sín í Herberginu, sýningarsal Kirsuberjatrésins, Vesturgötu 4 í Reykjavík.

Sýningin er yfirlitssýning. Opnun sýningarinnar verður laugardaginn 19. janúar kl. 15:00 til 17:00 og hún stendur til 25. janúar sama mánaðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×