Sport

Gáfu framtíðarstjörnu Norðmanna vaxtarhormón í þrjú ár

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helene Marie Fossesholm
Helene Marie Fossesholm Mynd/Skíðasamband Noregs
Norðmenn binda miklar væntingar til hinnar sautján ára gömlu Helene Marie Fossesholm og margir hafa gengið svo langt að kalla hana næstu Marit Björgen í skíðagöngu kvenna.

Marit Björgen hefur unnið flest verðlaun allra á vetrarólympíuleikum eða fimmtán en hún bætti þeim fimm síðustu við á Ólympíuleikunum í Pyeongchang í Suður-Kóreu í fyrra.

Marit Björgen hefur nú lagt keppnisskíðin á hilluna og nú horfa margir Norðmenn til Helenu Marie Fossesholm til að taka við af henni sem framtíðardrottning skíðagönguheimsins.





Sérfræðingurinn Petter Skinstad talaði um það við norska fjölmiðla í lok síðasta árs að Helene Marie Fossesholm væri mesta efnið sem hann hefði séð í tíu ár.

Helena á sér aftur á móti umdeilda forsögu og lyfjagjöf hennar á unglingsaldri kallaði á sérstaka fréttatilkynningu frá norska skíðasambandinu.

Norska skíðasambandið hefur nú sent frá sér slíka yfirlýsingu þar sem sem kemur fram að þessu næsta mögulega súperstjarna Norðmanna hafi fengið vaxtarhormón í tæp þrjú ár.

„Frá desember 2014 til september 2017 þá fékk Helene Marie Fossesholm vaxtarhormón. Helena hefur gengið í gegnum rannsóknir á spítölum frá því að hún var 8 til 9 ára gömul af því hún var svo lágvaxin. Þegar hún var þrettán og hálfs árs þá var hún aðeins 137,5 sentimetrar á hæð. Henni voru þá gefin vaxtarhormón og Helena er nú 151 sentimetrar á hæð,“ segir í yfirlýsingu frá norska sambandinu.





Það kemur einnig fram í tilkynningunni að Helene Marie Fossesholm hafi þarna fengið vaxtarhormón sem eru á bannlista Alþjóðalyfjaeftirlitsins, WADA. Það eru hinsvegar gefnar undirtekningar ef viðkomandi íþróttamaður þurfu heilsu sinnar vegna að fá slík lyf og norska sambandið segir að Fossesholm hafi fengið slíkt leyfi hjá WADA. Hennar kringumstæður féllu undir slíka undanþágu.

Helene Marie Fossesholm er nú á leiðinni á HM unglinga í Lahti í Finnlandi sem fer fram 20. til 27. janúar næstkomandi.

Hennar fyrstu Ólympíuleikar gætu síðan orðið í Peking árið 2022.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×