Fótbolti

Girona sló Atletico út úr bikarnum

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Leikmenn Girona fagna
Leikmenn Girona fagna vísir/getty
Seydou Doumbia tryggði Girona áfram í 8-liða úrslit spænsku bikarkeppninnar með jöfnunarmarki í seinni leiknum gegn Atletico Madrid í 16-liða úrslitunum.

Stuðningsmenn heimamanna í Atletico héldu að Antoine Griezmann hefði tryggt liðið áfram í undanúrslitin þegar hann skoraði á 84. mínútu og kom Atletico 3-2 yfir.

Doumbia jafnaði hins vegar leikinn aðeins fjórum mínútum síðar og tryggði Girona því áfram á mörkum á útivelli, fyrri leikurinn hafði endað 1-1.

Nikola Kalinic hafði komið Atletico yfir strax í upphafi leiksins Valery Fernandez jafnaði fyrir gestina áður en flautað var til hálfleiks.

Christian Stuani kom Girona yfir snemma í seinni hálfleik en Angel Correa jafnaði áður en Griezmann kom Atletico yfir á nýjan leik.

Atletico fann ekki enn eitt markið og varð því að láta jafntefli verða niðurstöðuna, Atletico úr leik en Girona spilar til 8-liða úrslita.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×