Handbolti

Topparnir í tölfræðinni á móti Makedóníu: Skoruðu sex mörk í tómt mark

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Arnór Þór Gunnarsson skoraði 10 mörk þarf af fjögur þeirra í tómt mark hjá Makedónum.
Arnór Þór Gunnarsson skoraði 10 mörk þarf af fjögur þeirra í tómt mark hjá Makedónum. Vísir/EPA
Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann frábæran endurkomusigur á Makedóníu, 24-22, í hreinum úrslitaleik um sæti í milliriðli á heimsmeistaramótinu í Þýskalandi og Danmörku.

Með sigrinum tryggði íslenska liðið sér þriðja sætið í riðlinum og þar með sæti í milliriðlinu á mótinu. Íslenska liðið var tveimur mörkum undir í hálfleik en vann seinni hálfleikinn 13-9.

Arnór Þór Gunnarsson skoraði tíu mörk, íslenska vörnin fór í gang í seinni hálfleik, Björgvin Páll Gústavsson var að verja bolta allan leikinn og Gísli Þorgeir Kristjánsson kom með frábæra innkomu í leikstjórnendahlutverkið eftir mjög dapra byrjun hjá íslenska liðinu í sóknarleiknum.

Íslensku strákarnir skoruðu sex mörk í tómt mark hjá Makedónum þar sem íslenska liðið refsaði Makedóníu fyrir að spila með sjö menn í sókninni. Arnór Þór skoraði þrjú slík mörk á upphafsmínútunum.

Vísir fylgist vel með tölfræði íslenska liðsins á mótinu og hefur nú tekið saman þá leikmenn sem sköruðu fram úr í tölunum í þessum fimmta leik Íslands á mótinu.

Hér fyrir neðan má sjá toppa íslenska liðsins í tölfræðinni.

- Íslensku landsliðsmennirnir á móti Makedóníu á HM 2019 -

Hver skoraði mest

1. Arnór Þór Gunnarsson 10/2

2. Aron Pálmarsson 2

2. Bjarki Már Elísson 2

2. Ómar Ingi Magnússon 2

2. Arnar Freyr Arnarsson 2

2. Elvar Örn Jónsson 2

Hver varði flest skot:

1. Björgvin Páll Gústavsson 13/1 (37%)

Hver spilaði mest í leiknum

1. Arnar Freyr Arnarsson 58:07

2. Björgvin Páll Gústavsson  55:32

3. Arnór Þór Gunnarsson 55:08

4. Aron Pálmarsson 51:14

5. Elvar Örn Jónsson  39:56

6. Ólafur Gústafsson 36:03

7. Bjarki Már Elísson 30:00

7. Stefán Rafn Sigurmannsson 30:00

Hver skaut oftast á markið

1. Arnór Þór Gunnarsson 13

2. Aron Pálmarsson 6

3. Stefán Rafn Sigurmannsson 5

4. Bjarki Már Elísson 4

4. Gísli Þorgeir Kristjánsson 4

6. Ómar Ingi Magnússon 3

6. Elvar Örn Jónsson 3

Hver gaf flestar stoðsendingar

1. Gísli Þorgeir Kristjánsson 5

2. Aron Pálmarsson 4

3. Ómar Ingi Magnússon 2

4. Sigvaldi Guðjónsson 1

4. Ólafur Gústafsson 1

4. Teitur Örn Einarsson 1

Hver átti þátt í flestum mörkum (Mörk + stoðsendingar)

1. Arnór Þór Gunnarsson 10 (10+0)

2. Aron Pálmarsson    6 (2+4)

2. Gísli Þorgeir Kristjánsson 6 (1+5)

4. Ómar Ingi Magnússon 4 (2+2)

5. Bjarki Már Elísson 2 (2+0)

5. Arnar Freyr Arnarsson 2 (2+0)

5. Ólafur Gústafsson 2 (1+1)

5. Elvar Örn Jónsson 2 (2+0)

5. Teitur Örn Einarsson 2 (1+1)

Hver stoppaði oftast í vörninni (HB Statz)

1. Arnar Freyr Arnarsson 9

2. Elvar Örn Jónsson 4

3. Ólafur Gústafsson 3

4. Aron Pálmarsson 1

4. Arnór Þór Gunnarsson 1

4. Ólafur Guðmundsson 1

4. Stefán Rafn Sigurmannsson 1

Hver tapaði boltanum oftast

1. Arnar Freyr Arnarsson 3

2. Aron Pálmarsson 1

2. Ómar Ingi Magnússon 1

Hver vann boltann oftast:

1. Ólafur Gústafsson 2

2. Aron Pálmarsson 1

2. Bjarki Már Elísson 1

Hæsta einkunn íslensku leikmannanna í sókn (HB Statz):

1. Arnór Þór Gunnarsson 9,1

2. Gísli Þorgeir Kristjánsson 7,7

3. Aron Pálmarsson 7,0

4. Ómar Ingi Magnússon 6,8

5. Ólafur Gústafsson 6,1

5. Elvar Örn Jónsson 6,1

Hæsta einkunn íslensku leikmannanna í vörn (HB Statz):

1. Arnar Freyr Arnarsson 10,0

2. Arnór Þór Gunnarsson 7,1

3. Ólafur Gústafsson 6,9

4. Elvar Örn Jónsson 6,6

5. Aron Pálmarsson 5,9

5. Stefán Rafn Sigurmannsson 5,9

- Hvaðan komu flest mörk íslenska liðsins í leiknum -

6 úr hraðaupphlaupum (8 með seinni bylgju)

5 af línu

4 með langskotum

3 úr hægra horni

2 með gegnumbrotum

2 úr vítum

2 úr vinstra horni

- Plús & mínus kladdinn í leiknum -

Mörk með langskotum: Makedónía +5 (9-4)

Mörk af línu: Ísland +1 (5-4)

Mörk úr hraðaupphlaupum: Ísland +4 (8-4)

Tapaðir boltar: Makedónía +7 (12-5)

Fiskuð víti: Ísland +3 (5-2)

Varin skot markvarða: Makedónía +2 (15-13)

Varin víti markvarða: Makedónía +2 (3-1)

Misheppnuð skot: Ísland +1 (21-20)

Löglegar stöðvanir: Ísland +3 (20-17)

Refsimínútur: Ísland +2 mín (8-6)

- Góðu og slæmu kaflarnir í leiknum -

Fyrri hálfleikurinn: Makedónía +2 (13-11)

1. til 10. mínúta:  Makedónía +2 (4-2)

11. til 20. mínúta: Ísland +1 (5-4)

21. til 30. mínúta:  Makedónía +1 (5-4)

Seinni hálfleikurinn: Ísland +4 (13-9)

31. til 40. mínúta: Ísland +2 (5-3)

41. til 50. mínúta: Ísland +1 (3-2)

51. til 60. mínúta: Ísland +1 (5-4)

Byrjun hálfleikja: Jafnt (7-7)

Lok hálfleikja:  Jafnt (9-9)


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×