Innlent

Lyftara ekið á hafnarvörð í Grindavík

Atli Ísleifsson skrifar
Maðurinn var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í Reykjanesbæ.
Maðurinn var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í Reykjanesbæ. Vísir/vilhelm
Lyftara var ekið á hafnarvörð í Grindavík í vikunni, en þrjú fiskikör voru á lyftaranum þegar óhappið átti sér stað.

Frá þessu segir í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

„Hafnarvörðurinn féll í jörðina við ákeyrsluna og dróst með honum nokkurn spöl áður en stjórnandi tækisins varð hans var.

Sá fyrrnefndi var fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Hann reyndist hafa sloppið betur en á horfðist því hann hlaut mar en ekki frekari meiðsl,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×