Sport

Flúði í öryggishús hjá FBI er hann sá ógnandi færslu frá fyrrum liðsfélaga

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jonathan Martin í búningi Dolphins.
Jonathan Martin í búningi Dolphins. vísir/getty
Fyrrum NFL-leikmaðurinn Jonathan Martin, sem lagður var í einelti af liðsfélögum sínum, mun þurfa að mæta fyrir rétt vegna hótana sem hann setti á Instagram á síðasta ári.

Dómari í Los Angeles er á því að færsla sem Martin setti í „story“ á Instagram dugi til þess að rétta yfir honum.

Eins og sjá má á myndinni hér að neðan er hún af haglabyssu og menn sem gerðu Martin lífið leitt merktir inn á hana sem og framhaldsskóli Martin.





Það kemur engum á óvart að Richie Incognito sé á þessum lista en hann var liðsfélagi Martin hjá Miami Dolphins og stóð fyrir einelti þar í garð Martin.

Incognito hefur alltaf þóst vera rosa harður en hann flúði til FBI er hann sá þetta á Instagram. Hann tók pabba sinn, bróður og hundinn sinn inn í bíl og keyrði í tvo tíma þar sem FBI tók á móti honum í öryggishúsi.

Martin var aftur á móti handtekinn. Gamla skólanum hans var lokað af ótta við að Martin væri á leið þangað.

Mál Martin verður tekið fyrir þann 30. janúar.

NFL

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×