Lífið

Ellen kom Kevin Hart til varnar í viðtali: „Ekki leyfa þessu fólki að vinna“

Sylvía Hall skrifar
Kevin Hart og Ellen DeGeneres hafa verið vinir um árabil.
Kevin Hart og Ellen DeGeneres hafa verið vinir um árabil. Getty/Christopher Polk
Bandaríski leikarinn og grínistinn Kevin Hart hætti við að kynna Óskarsverðlaunin eftir að gömul ummæli sem hann lét falla um samkynhneigða voru rifjuð upp. Umrædd ummæli voru látin falla á Twitter og í uppistandi fyrir nokkrum árum. 

Eftir að ummælin voru rifjuð upp eftir voru honum settir afarkostir. Annaðhvort myndi hann biðjast afsökunar eða stíga til hliðar sem kynnir. 

Í myndbandi sem grínistinn birti á Instagram-síðu sinni í kjölfarið sagðist hann ekki ætla að biðjast afsökunar þar sem hann hafði áður rætt þetta mál og vildi ekki dvelja í fortíðinni. Hann steig því til hliðar sem kynnir. 

Sjá einnig: Kevin Hart hættir sem Óskarskynnir vegna umdeildra ummæla um samkynhneigða

Hart barst stuðningur úr óvæntri átt nú á dögunum þegar hann mætti í viðtal hjá Ellen DeGeneresDeGeneres, sem sjálf er samkynhneigð, sagðist vonast til að sjá grínistann kynna verðlaunin í ár. 

Hringdi sjálf í Akademíuna 

Í viðtalinu rifjaði DeGeneres upp símtal sem hún átti við Hart eftir að hann hafi tekið þá ákvörðun um að stíga til hliðar og tjáði henni að hann vildi koma í viðtal. Sama dag og viðtalið var tekið upp hringdi DeGeneres í Akademíuna og hvatti þau til þess að fá Hart aftur sem kynni. 

„Ég var svo spennt þegar þau báðu þig um að kynna, mér fannst það frábært og ég vissi hversu mikilvægt það væri fyrir þig. Ég hringdi í þau og sagði: „Kevin er til, ég veit ekki hvort hann vilji koma aftur og kynna en hvað finnst ykkur?“,“ sagði DeGeneres

Hún sagði Akademíuna hafa verið til í að fá hann aftur. Þau hafi verið hrædd um að hann hafi misskilið aðstæður eða mál hans hafi verið tæklað á rangan hátt. Þá ýjaði hún að því að ástæðan fyrir því að það væri ekki enn búið að tilkynna nýjan kynni væri sú að Akademían vonaðist enn til að Hart tæki það hlutverk að sér. 

DeGeneres hvatti Hart til þess að hlusta ekki á „tröll“ á netinu sem væru að rifja upp ummælin. Það væri aðeins lítill og hávær hópur sem bliknaði í samanburði við þann stóra hóp sem vildi sjá grínistann kynna verðlaunin í ár. 

„Þú mátt ekki leyfa þeim að rústa þér og þau geta ekki rústað þér, þú ert of hæfileikaríkur til þess.“



Aðdáendur DeGeneres ósáttir 

Margir aðdáendur spjallþáttastjórnandans lýstu yfir vonbrigðum með viðtalið á samfélagsmiðlum. DeGeneres, sem hefur verið ötul baráttukona fyrir réttindum samkynhneigðra, hefur verið gagnrýnd harðlega af mörgum fyrir að hafa farið of mjúkum höndum um grínistann.

„Ellen hafði tækifærið til þess að láta Kevin Hart axla ábyrgð ummælum sínum um LGBTQ+ samfélagið en gaf honum í staðinn pláss til þess að gera sjálfan sig að fórnarlambi þegar það var hann sem lét hrottaleg ummæli falla á Twitter,“ skrifaði einn notandi um viðtalið. 





Þá benti annar notandi á að DeGeneres gæti ekki tekið sér það bessaleyfi að fyrirgefa Hart fyrir hönd allra samkynhneigðra. Annar minnti hana á að „þetta fólk“ sem hún talaði um væri hennar eigið samfélag sem hefði staðið við bakið á henni þegar hún átti erfitt uppdráttar eftir að hafa komið út úr skápnum.



 



Margir vöktu athygli á því að DeGeneres og Hart ættu það sameiginlegt að lifa forréttindalífi sem væri fjarri þeim raunveruleika sem hinsegin fólk upplifði. 





Hér að neðan má sjá hluta af viðtalinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×