Innlent

Dæmdur fyrir nauðgun á gólfinu á Hressó

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Brotið átti sér stað í febrúar árið 2016.
Brotið átti sér stað í febrúar árið 2016. Vísir/Vilhelm
Hemn Rasul Hamd, ríkisborgari með óþekktan dvalarstað, hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að nauðga konu á salerni á veitingastaðnum Hressó í Austurstrætí í febrúar fyrir tæpum þremur árum. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Hamd játaði við aðalmeðferð málsins að hafa haft samfarir við brotaþola á salerni Hressó en hafði áður neitað því við yfirheyrslu hjá lögreglu. Sagði hann samfarirnar hafa verið með vilja konunnar. Hann var á veitingastaðnum ásamt félögum sínum að fagna afmæli sínu.

Frásögn konunnar og Hamd var gjörólík. Hann sagði þau hafa verið í kossaflensi og farið saman á klósett þegar það losnaði. Konan mundi, þrátt fyrir minniháttar drykkju, lítið eftir kvöldinu. Tóku vinkonur hennar undir að hún hefði virkað í skrýtnu ástandi miðað við magn áfengis sem hún hafði neytt.

Mundi eftir sér á gólfinu

Hún lýsti því þannig að hún hefði farið á salernið þangað sem maðurinn hefði verið kominn inn. Hann hefði reynt að kyssa hana, hún neitað og farið á klósettið. Síðan mundi hún eftir sér á gólfinu, með buxurnar á hælunum og vinkona hennar að reka manninn af henni.

Hamd var gefið að sök að hafa haft samræði við konuna gegn vilja hennar með því að beita hana ofbeldi og notfæra sér að hún gat ekki spornað við verknaðinum vegna ástands hennar. Í niðurstöðu héraðsdóms segir að konan hafi frá upphafi borið að hún hafi „dottið út“ og muna mest lítið eftir sér, eins og rakið var. Hún hefði að eigin sögn drukkið þrjá bjóra og reykt gras kvöldið áður.

Vinkonur hennar sögðu allar að ástand hennar hefði ekki verið í samræmi við áfengisneyslu hennar þetta kvöld. Ein vinkvennanna lýsti því að konan hefði verið eins og meðvitundarlaus á salernisgólfinu þegar hún kom að og önnur lýsti því hvernig ákærði hefði haldið henni. Konan sagði vinkonu sinni frá því daginn eftir að þetta hefði verið eitthvað sem hún hefði ekki viljað og að henni hefði verið nauðgað. Þá lýsti hún atvikum á sama hátt á Neyðarmóttökunni.

Var það mat dómsins að konan hefði gefið trúverðuga skýrslu fyrir dómi. Skýrslan hefði verið í meginatriðum í samræmi við frásögn í skýrslutöku hjá lögreglu. Á sama hátt skýrði hún öðrum frá atvikum málsins, bæði vinkonum sínum og eins á Neyðarmóttökunni.



Ótrúverðugur framburður ákærða

Framburður Hamd væri á hinn bóginn ekki trúverðugur. Fyrst sagðist hann ekki muna hvort hann hefði haft samræði við konuna eða ekki. Fyrir dómi kannaðist hann hins vegar við samfarirnar og kvað þær hafa verið með samþykki brotaþola.

„Þá er til þess að líta að ákærði hefur samfarir við brotaþola þar sem hún liggur á steingólfi á salerni veitingastaðarins. Þetta gerist skömmu eftir að þau höfðu sést í fyrsta skipti og bar brotaþoli áverka eftir samfarirnar eins og rakið var,“ segir í dómnum.

Var staðfastur framburður konunnar lagður til grundvallar og Hamd því sakfelldur fyrir nauðgun. Var refsingin ákveðin hæfileg tvö og hálft ár og konunni dæmdar 1,5 milljón króna í miskabætur.


Tengdar fréttir

Í farbanni grunaður um nauðgun en komst samt úr landi

Rúmlega þrítugur Íraki, sem er eftirlýstur af Interpol vegna nauðgunar á Íslandi, slapp úr landi þrátt fyrir að hann hafi verið í farbanni. Mjög erfitt er að koma í veg fyrir að menn með einbeittan brotavilji komist framhjá farbanni með því að villa á sér heimildir að sögn saksóknara.

Grunaður um nauðgun á salerninu á Hressó

Erlendur karlmaður er sakaður um að hafa nauðgað konu á veitingastaðnum Hressó í Austurstræti aðfaranótt Valentínusardagsins þann 14. febrúar 2016.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×