Enski boltinn

Mourinh vissi ekki af yfirlýsingunni og er alveg sama

Anton Ingi Leifsson skrifar
Mourinho á fundinum í dag.
Mourinho á fundinum í dag. vísir/getty
Í síðustu viku gaf Jorge Mendes, umboðsmaður Jose Mourinho, út yfirlýsingu þess efnis um að sæti Jose Mourinho væri ekki heitt á Old Trafford.

Yfirlýsingin kom nokkuð á óvart og vissu menn ekki í hvað stefndi en á blaðamannafundi í dag greindi Mourinho frá því að þessi hugmynd hafi komið frá Mendes. Ekki Mourinho sjálfum.

Sjá einnig:Umboðsmaður Mourinho: Hann er hæstánægður hjá United

Hann var spurður út í það hvort að hann hafi vitað af þessari yfirlýsingu og segir hann að hann hafi ekki vitað af henni. Sé í raun alveg sama.

Spurninguna frá fréttamanni og svör Mourinho má sjá hér að neðan en United mætir Valencia í Meistaradeildinni annað kvöld. United er nú þegar komið áfram í 16-liða úrslitin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×