Viðskipti innlent

Nýtt ­app Arion banka opið öllum

Þorsteinn Friðrik Halldórsson skrifar
Iða Brá Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Arion.
Iða Brá Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Arion. Fréttablaðið/Sigtryggur Ari
Ný útgáfa af Arion appinu mun fara í loftið á næstu dögum og verður hún öllum opin, ekki aðeins viðskiptavinum Arion banka. Framkvæmdastjóri hjá bankanum segir að um sé að ræða nýja hugsun á íslenskum bankamarkaði.

Þegar appinu hefur verið hlaðið niður er til dæmis hægt að stofna debetreikning og panta greiðslukort, stofna reglulegan sparnað eða taka svokallað Núlán þar sem kjör og lánsupphæð byggja á lánshæfismati hvers og eins. Einnig fylgir aðild að Einkaklúbbnum sem er stærsti fríðinda- og afsláttarklúbbur landsins.

„Þetta er ný hugsun á íslenskum bankamarkaði að okkar mati og ákvörðunin um að opna dyr að stafrænum lausnum bankans með þessum hætti byggir ekki síst á þeim góðu viðtökum sem rafræna greiðslumatið vegna íbúðalána fékk á sínum tíma,“ segir Iða Brá Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Arion banka, en 40 prósent þeirra sem fara í gegnum greiðslumatið á vef bankans eru viðskiptavinir annarra banka.

„Við sáum það vel þegar við kynntum stafræna greiðslumatið til leiks að snjallar lausnir sem auka þægindi, spara tíma og jafnvel peninga höfða til fleiri en okkar viðskiptavina. Greiðslumatið var þjónusta sem allir gátu nýtt sér.“

Iða Brá segir að með appinu geti fólk valið þá þjónustu sem hentar því best enda þurfi fólk ekki að vera með öll viðskipti hjá einum banka. Þá felist engin skuldbinding í því að sækja appið.

„Við erum hvergi nærri hætt og munum á nýju ári kynna fleiri spennandi lausnir fyrir viðskiptavini okkar sem auðvelda þeim lífið og gera þjónustuna okkar enn þægilegri,“ segir Iða Brá.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×