Handbolti

Bikarslagnum frestað í Eyjum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Sigurbergur og félagar spila annað kvöld.
Sigurbergur og félagar spila annað kvöld. vísir/anton
Ekkert verður að því að ÍBV og Grótta mætist í Coca-Cola bikar karla i kvöld en leiknum hefur verið frestað.

Gróttu-liðinu gek illa að koma sér til Eyja vegna veðurs og því hefur verið ákveðið að leikurinn verður spilaður annað kvöld klukkan 18.00.

Þessi sömu lið mættust í síðustu umferð Olís-deildarinnar og þar hafði ÍBV betur en leikurinn er liður í 16-liða úrslitum bikarsins.

Leikur ÍBV 2 og ÍR, einnig í Coca-Cola bikarnum, hefur því verið færður aftur um tvo tíma og verður því bikar tvíhöfði í Eyjum á morgun.

Grótta mun sigla til Eyja síðar í kvöld og Breiðhyltingar sigla þangað á morgun en fyrri leikurinn á morgun verður í beinni lýsingu í Boltavaktinni á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×