Viðskipti erlent

Stórtækar breytingar hjá IKEA snerti ekki Ísland

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Jólageitin í Kauptúni mun ekki þurfa að horfa upp á uppsagnir hjá IKEA á næstunni að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins.
Jólageitin í Kauptúni mun ekki þurfa að horfa upp á uppsagnir hjá IKEA á næstunni að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Vísir/Vilhelm
Talið er að IKEA Group muni á næstunni segja upp ríflega 7500 starfsmönnum á heimsvísu. Uppsagnirnar eru sagðar í sænskum fjölmiðlum vera liður í einhverjum stærstu skipulagsbreytingum sem félagið hefur ráðist í. Breytingar sem eru þó óþarfar hér á landi, að sögn framkvæmdastjóra IKEA á Íslandi.

Ætlunin hjá IKEA Group er að leggja ríkari áherslu á hvers kyns sjálfvirknivæðingu og sölu á netinu, heimsendingar og þjónustu sem „er í takti við breytingar innan smásölugeirans,“ eins og það er orðað á vef sænska ríkisútvarpsins.

Þar er þess getið að uppsagnirnar muni ná til um 650 starfsmanna í Svíþjóð, ekki síst í Malmö, Helsingborg og Älmhult. Hins vegar geri IKEA ráð fyrir því að í fyllingu tímans muni starfsmönnum samsteypunnar fjölga um 11.500 á heimsvísu - en hvenær og hvar sú fjölgun muni eiga sér stað fylgir þó ekki sögunni.

Fjölgun frekar en fækkun

Þórarinn Ævarsson, framkvæmdastjóri IKEA á Íslandi, segir að þessar skipulagsbreytingar muni ekki hafa nein áhrif hér á landi. Þrátt fyrir óneitanleg tengsl milli IKEA Group, sem rekur um 400 verslanir um allan heim, og fyrirtækisins á Íslandi séu þó um tvö aðskilin félög að ræða.

Eins og fyrr segir er stefna IKEA Group að leggja aukna áherslu á netverslun í náinni framtíð, eitthvað sem Þórarinn segir að IKEA á Íslandi hafi boðið viðskiptavinum sínum upp á í rúmlega áratug. Því sé engin þörf á því að fara í samskonar skipulagsbreytingar hér á landi, með tilheyrandi uppsögnum.

Þvert á móti gerir Þórarinn frekar ráð fyrir því að fjölga starfsfólki á næstunni, fremur en að fækka því eins og IKEA Group hefur boðað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×