Lífið

Föðurhlutverkið hefur breytt mér

Stefán Árni Pálsson skrifar
Gunnar Nelson fer yfir víðan völl í nýjasta þættinum af Einkalífinu.
Gunnar Nelson fer yfir víðan völl í nýjasta þættinum af Einkalífinu. vísir/vilhelm
Gunnar Nelson er besti bardagamaður Íslands og hefur náð gríðarlega langt í sínu sporti og þá sérstaklega í UFC. Hann er í 14. sæti á styrkleikalistanum hjá UFC og mætir Alex Oliveira í Toronto þann 8. desember.

Gunnar er níundi gestur Einkalífisins en í þáttunum er rætt við einstaklinga sem hafa skarað fram úr á sínu sviði. Hann á son sem hann eyðir miklum tíma með en drengurinn heitir Stígur Týr Gunnarsson. Segir Gunnar að drengurinn hafi haft mikil og jákvæð áhrif á sig.

„Þetta breytir manni helling. Maður þarf að aðlagast honum í dagsdaglegu lífi og þetta hefur hrikalega góð áhrif á mann. Maður þarf að breyta aðeins hugsunarhætti sínum og þú í raun og veru opnar nýja vídd í lífi þínu. Þetta er hrikalega gefandi,“ segir Gunnar og heldur áfram.

„Strákurinn minn er hrikalega orkumikill og eins og mamma segir þá á ég hann fullkomlega skilið, alveg skuldlaust. Hún segir að hann sé alveg eins og ég þegar ég var lítill, hann stoppar ekki og er algjör skæruliði.“

Gunnar segir að það sé magnað að fylgjast með manneskju vaxa alvega frá grunni.

Stígur fær oft að horfa á pabba æfa sig.
„Að ala upp barn tekur mann aftur í beisikið og þú lærir betur á grunninn. Hvernig við erum í raun innst inni og hvernig hlutirnir eru í rauninni einfaldir þótt við séum oft búin að flækja hlutina mikið. Það þekkja það flestir eða allir sem eiga börn að það er ekki til eins góð tilfinning og væntumþykja til barnanna þinna. Þú vilt þeim svo vel og finnst gaman að vera í kringum þau og þér líður vel þegar þeim líður vel. Þetta breytir manni að sjálfsögðu og gerir mann að betri manni.“

Í þættinum ræðir Gunnar Nelson einnig um ástina í lífi sínu, hættuna sem fylgir því að vera í MMA, um tölvuleikjaáhugann, um skaðsemina af þeim mikla niðurskurði sem bardagamenn fara í fyrir bardaga, um djammið, vináttu hans við Conor McGregor og Nandos-fíknina.

Hér að ofan má sjá þáttinn í heild sinni en hann kemur vikulega á Vísi á fimmtudögum.  


Tengdar fréttir

Reyndist vel að lenda á milli tannanna á fólki

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir er 27 ára alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Áslaug er ungur þingmaður sem hefur náð mjög langt á stuttum tíma en hún er fjórði gestur Einkalífsins á Vísi.

Pabbi var mín besta forvörn

Heiðar Logi Elíasson er einn þekktasti brimbrettakappi landsins. Hann starfar meðal annars sem fyrirsæta, er með sítt, ljóst og fallegt hár og vakti athygli lesenda Vísis á dögunum þegar hann var fastur í Málmey í fjóra daga án vatns og matar.

Árin án móður sinnar í Rússlandi voru lærdómsrík

Katrín Lea Elenudóttir var krýnd Miss Universe í ágúst en hún mun taka þátt í 67. Miss Universe keppninni í Bangkok í desember. Katrín er í fullum undirbúningi fyrir keppnina og er hún þriðji gestur Einkalífsins á Vísi.

Páll Óskar ætlar alfarið að sniðganga Eurovision

"Ég fer í Eurovision þegar það kemur flott lag og ég hef ekki fengið inn lag sem kýlir mig kaldan,“ segir Páll Óskar Hjálmtýsson sem er áttundi gestur Einkalífsins en í þáttunum er rætt við fólk sem skarar fram úr á sínu sviði.

„Það erfiðasta sem ég hef gert“

Leikkonan Kristín Þóra Haraldsdóttir fer á kostum í kvikmyndinni Lof mér að falla en þar leikur hún sprautufíkil sem hefur misst öll tök á lífi sínu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×