Viðskipti erlent

Biðja um að Huawei verði sniðgengið

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Frá kynningu á Huawei Mate 20 Pro. Þótt síminn sé glæsilegur fæst hann ekki í Bandaríkjunum.
Frá kynningu á Huawei Mate 20 Pro. Þótt síminn sé glæsilegur fæst hann ekki í Bandaríkjunum. Getty/SOPA Images
Ríkisstjórn Bandaríkjanna reynir um þessar mundir að telja bandamenn sína á að hætta notkun netbúnaðar frá kínverska tæknifyrirtækinu Huawei. Wall Street Journal greindi frá málinu í gær en heimildarmenn miðilsins staðfestu að bandarískir erindrekar hefðu átt fundi með Þjóðverjum, Japönum og Kínverjum um málið. Bandaríkin væru að íhuga að bjóða bandamönnum fjárhagslega aðstoð í skiptum fyrir að sniðganga kínverska fyrirtækið.

Tæknifyrirtækið hefur orðið fyrir ýmsum þvingunum í Bandaríkjunum. Opinberar stofnanir mega ekki nota netbúnað frá fyrirtækinu og verslanir mega ekki selja snjallsíma þess.

Huawei er að nafninu til í eigu starfsmanna en ítök kínversku ríkisstjórnarinnar innan fyrirtækisins eru mikil. Því er óttast að vörur Huawei séu notaðar til þess að njósna um eigendur. Stjórnendur Huawei hafa alla tíð neitað þessum ásökunum en yfirmenn FBI, CIA og annarra bandarískra öryggisstofnana eru langt frá því að vera sannfærðir.

Bandaríkjamenn hafa áhyggjur af því að búnaðurinn sé notaður í ríkjum þar sem Bandaríkjaher er með herstöðvar. Yfirvöld í Kína gætu, að því er Bandaríkjastjórn trúir, ráðist á tölvukerfi ríkisstjórna bandalagsríkja og stolið upplýsingum. Hér á landi má til að mynda kaupa vörur Huawei í Elko, hjá Nova og Símanum.

Talsmaður Huawei sagði í svari við fyrirspurn Wall Street Journal að fyrirtækið væri undrandi á hegðun bandarísku ríkisstjórnarinnar. „Huawei trúir því að viðskiptavinir okkar taki rétta ákvörðun og byggi hana á eigin dómgreind og reynslunni af samstarfinu við Huawei.“








Fleiri fréttir

Sjá meira


×