Sport

Eins leiks bann fyrir slagsmál | Fékk bjórdós í hausinn er hann fór af velli

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Leonard Fournette.
Leonard Fournette. vísir/getty
Hlaupari Jacksonville Jaguars, hinn skapheiti Leonard Fournette, spilar ekki um næstu helgi eftir að hafa misst stjórn á skapi sínu í leik um síðustu helgi.

Þá lenti hann í slagsmálum við leikmann Buffalo og gekk hart fram. Hann kýldi Buffalo-manninn nokkrum sinnum í hausinn sem var reyndar einstaklega heimskulegt hjá Fournette þar sem leikmenn í deildinni spila með hjálma.

Báðum leikmönnum var vísað af velli en aðeins Fournette var dæmdur í bann. Hann fær heldur engin laun þessa vikuna.





Ástæðan fyrir banninu er sú að Fournette átti ekki þátt í átökum á vellinum heldur kom hlaupandi af bekknum til þess að fara að slást. Það þykir ekki til eftirbreytni.

Fastlega er búist við því að Fournette áfrýji þessum úrskurði.

Á leið sinni af vellinum var Fournette síðan grýttur með bjórdós eins og sjá má hér að neðan.





NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×