Innlent

Handteknir vegna gruns um líkamsárás og rán

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Mennirnir voru vistaðir í fangageymslu.
Mennirnir voru vistaðir í fangageymslu. Vísir/Vilhelm
Lögregla handtók á tólfta tímanum í gærkvöldi tvo menn í Breiðholti sem grunaðir eru um líkamsárás, rán og vörslu fíkniefna. Mennirnir voru vistaðir í fangageymlsu fyrir rannsókn málsins. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Á tíunda tímanum voru tveir menn handteknir í Kópavogi grunaðir um vörslu og sölu fíkniefna. Mennirnir voru vistaðir í fangageymslu.

Þá stöðvaði lögregla einnig nokkra ökumenn í gærkvöldi og í nótt vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×