Innlent

Árekstur á Breiðholtsbraut

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Frá vettvangi í morgun. Bílarnir voru dregnir af vettvangi.
Frá vettvangi í morgun. Bílarnir voru dregnir af vettvangi. Vísir/FÞH
Árekstur tveggja bíla varð á Breiðholtsbraut við Skógarsel rétt fyrir klukkan átta í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var áreksturinn ekki harður en bílarnir eru báðir óökufærir og voru dregnir af vettvangi.

Enginn var fluttur á slysadeild en einn hlutaðeigandi kenndi þó eymsla í hálsi. Vinnu var lokið á vettvangi á níunda tímanum og urðu ekki teljanlegar umferðartafir vegna slyssins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×