Innlent

Fresta þurfti sautján ferðum vegna veðurs á Keflavíkurflugvelli

Birgir Olgeirsson skrifar
Veðrið getur sett áætlunarflug frá Keflavíkurflugvelli úr skorðum.
Veðrið getur sett áætlunarflug frá Keflavíkurflugvelli úr skorðum. vísir/vilhelm
Fresta þurfti brottförum sautján farþegaþotna frá Keflavíkurflugvelli í dag vegna veðurs. Af þeim voru tólf frá Icelandair. Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, segir í samtali við Vísi að ekki hafi verið hægt að notast við landganga og stigabíla vegna veðurs nú síðdegis og því var ekki hægt að koma farþegum í vélarnar.

Þegar þetta er ritað hefur einn landgangur verið tekinn í notkun en suðaustan hvassviðri hefur verið á Keflavíkurflugvelli og ekki búist við að vindur gangi niður fyrr en seinna í kvöld.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×