Innlent

Þriggja bíla árekstur á Vesturlandsvegi

Birgir Olgeirsson skrifar
Mynd frá vettvangi slyssins.
Mynd frá vettvangi slyssins. Vísir/Jói K
Þriggja bíla árekstur varð á Vesturlandsvegi til móts við Grjótháls um klukkan tvö í dag. Þrír voru fluttir á slysadeild, einn úr hverjum bíl, til frekari skoðunar en ekki er talið að þeir hafi slasast alvarlega.

Vinna á vettvangi stendur enn yfir og má búast við einhverjum umferðartöfum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×